Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Umsóknarfrestur í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar

15.09.2026 - 15.09.2026

Hvatasjóðurinn er á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) með stuðningi mennta- og barnamálaráðuneytis. Sjóðurinn tengist stofnun átta svæðisstöðva íþróttahéraða og markmiðum um eflingu íþróttastarfs á landsvísu. Næsti umsóknarfrestur í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar er til 15. september 2026, en þegar hefur verið úthlutað úr sjóðnum tvisvar á þessu ári. Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn. Hverjir geta sótt um? Í hvatasjóðinn geta sótt: Íþróttahéruð ÍSÍ og UMFÍ Íþróttafélög og deildir innan ÍSÍ og UMFÍ Sérsambönd ÍSÍ í samstarfi við Íþróttahéruð, félög eða deildir félaga. Hvað styrkir sjóðurinn? Hvatasjóðurinn veitir styrki til verkefna sem: auka útbreiðslu og þátttöku barna í íþróttum efla þátttöku barna með fötlun efla þátttöku barna frá tekjulægri heimilum efla þátttöku barna með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn Hvað skal umsóknin innihalda? Í umsókn skal meðal annars tilgreina: lýsingu á verkefninu og markmiðum þess rökstuðning fyrir áhrifum verkefnisins á viðkomandi svæði tíma og verkáætlun fjárhagsáætlun verkefnisins Sækja um í hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar Reglugerð um Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar


Viðburðir

  • 09.09.2026 Verkefnið Göngum í skólann
  • 14.09.2026 Haustfjarnám í þjálfaramenntun ÍSÍ
  • 15.09.2026 Umsóknarfrestur í Hvatasjóð íþróttahreyfingar..
  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 23.09.2026 Íþróttavika Evrópu
  • 30.09.2026 Fundur Framkvæmdanefndar Landsmóts 50+ 2027
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is