Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Íþróttaeldhugi ársins, tilnefningar

05.12.2025 - 05.12.2025

Íslendingar eru hvattir til að senda inn ábendingar um öfluga sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni. Íþróttaeldhugi ársins verður tilnefndur samhliða lýsingu á kjöri Íþróttamanns ársins 2025. Lottó og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir þessari tilnefningu. Almenningi gefst kostur á að senda inn ábendingar um öfluga sjálfboðaliða til 5. desember á vefslóðinni https://isi.is/fraedsla/ithrottaeldhugi-2025/ Leitað er eftir framúrskarandi sjálfboðaliðum sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarf, t.d. með því að vinna að framkvæmd móta/leikja, safna fjármunum, bæta aðstöðu, sitja í stjórnum eða auka þátttöku hvar á landinu sem er. Opnað hefur verið fyrir ábendingar en rétt er að geta þess að launað starfsfólk íþróttahreyfingarinnar kemur ekki til greina. Sérstök valnefnd hefur verið skipuð en í henni sitja Þórey Edda Elísdóttir formaður, Snorri Einarsson, Dagur Sigurðsson, Kristín Rós Hákonardóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir. Valnefndin mun fara yfir innsendar tilnefningar, velja þrjá aðila og taka lokaákvörðun um hver hlýtur titilinn Íþróttaeldhugi ársins 2025. Íþróttaeldhugi ársins 2025 fær afhentan glæsilegan verðlaunagrip frá Lottó.


Viðburðir

  • 14.12.2025 HSK mót í taekwondo
  • 11.01.2026 Unglingamót HSK í frjálsum íþróttum
  • 11.01.2026 Aldursflokkamót HSK í frjálsum íþróttum
  • 12.01.2026 Umsóknir í Ferðasjóð íþróttafélaga
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

16.11

Unglimgamót HSK í sundi

13.11

Blak, héraðsmót karla, fyrri h...

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

14.12

Taekwondo, héraðsmót

11.01

Frjálsar, aldursflokkamót

11.01

Frjálsar, unglingamót

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is