Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Samráðsfundur aðildarfélaga innan HSK, ÍBV og USVS

14.11.2025 - 14.11.2025

Eftir fund íþróttahéraðanna á Suðurlandi sem haldinn var í Vestmanneyjum í lok ágúst var svæðisfulltrúum Suðurlands falið að skipuleggja samráðsfund allra aðildarfélaga innan HSK, ÍBV og USVS. Þessi fundur er liður í að nýta auka fjárveitingu sem ÍSÍ og UMFÍ settu í svæðisstöðvarnar og á að þjónusta öll héröðin með samræmdum hætti. Ákveðið var að bjóða stjórnum íþróttahéraða ásamt formönnum/staðgenglum og framkvæmdarstjórum aðildafélaga að sitja á stuttum vinnufundi, sem lýkur með kvöldverði og gistingu fyrir þau sem það kjósa. Kostnaður við samráðsfundinn er greiddur með þessu auka fjármagni. Þetta er tilvalinn vettvangur fyrir forystu félaga og héraða að hittast, skiptast á hugmyndum og borða saman kvöldverð. Fundurinn fer fram föstudaginn 14. nóvember á Stracta Hotel frá kl. 15:00 -18:00. Dagskráin er ekki fullmótuð en hún samanstendur af stuttum fræðsluerindum, vinnustofu og óformlegu spjalli. Að fundi loknum býðst öllum gestum að þiggja kvöldverðarhlaðborð og gistingu. Þeir sem hafa fengið boð um að mæta eru beðnir að staðfesta þátttöku frá félaginu með því að svara forms könnun, en vefslóðin var send til formanna og framkvæmdastjóra félaga, auk stjórna íþróttahéraða á Suðurlandi. Svar óskast í síðasta lagi þriðjudaginn 28. október.


Viðburðir

  • 17.05.2026 Ársþing Judósambands Íslands
  • 17.05.2026 Málþing um meðgöngu og endurkomu eftir fæðing..
  • 21.05.2026 Vormót HSK í frjálsum íþróttum
  • 04.06.2026 Héraðsleikar HSK í frjálsum íþróttum
  • 06.06.2026 Ársþing Glímusambands Íslands
  • 14.06.2026 Bláskógaskokk HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

21.03

Frjálsar, héraðsleikar innanhú...

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

04.06

Frjálsar, héraðsleikar

14.06

Bláskógaskokk HSK

15.06

Frjálsar, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is