Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Hvernig nýtist gervigreind afreksíþróttafólki?

04.11.2024 - 04.11.2024

Íþróttamannanefnd ÍSÍ stendur fyrir áhugaverðu erindi um gervigreind þann 4. nóvember næstkomandi. Yfirskriftin er Hvernig getur gervigreind nýst afreksfólki í íþróttum? Skráning fer fram hér en skráningu lýkur 1. nóvember. Magnús Smári Smárason mun sjá um námskeiðið en hann er fjölhæfur sérfræðingur með bakgrunn í neyðar- og viðbragðsþjónustu, lögfræði og gervigreind. Sem virkur íþróttamaður frá barnæsku hefur hann stundað fjölbreyttar íþróttir og þjálfað bæði börn og fullorðna. Magnús hefur yfirgripsmikla þekkingu á íþróttamálum, allt frá stjórnarstörfum íþróttafélaga, mótahaldi til daglegra æfinga og stjórnsýslu hjá sveitarfélögum og ríki. Magnús Smári er pistlahöfundur hjá Akureyri.net og heldur úti vefsíðunni www.smarason.is þar sem hann deilir tilraunum og pælingum um gervigreind. Farið verður yfir praktíska notkun á ChatGPT og svipuðum verkfærum. Markmið námskeiðsins er að reyna að kynna fyrir íþróttafólki hvað gervigreind er og hvað hún getur gert og getur ekki gert. Dæmi um hluti sem hún gæti hjálpað íþróttafólki með væri til dæmis: Umsóknargerð fyrir ýmiskonar styrki og úthlutanir Gerð efnis fyrir samfélagsmiðla Greining á tölfræði Hjálpað við að halda utan um næringu, svefn og andlega heilsu. Námskeiðið verður haldið í Laugardalshöll í sal 1 (gengið inn um inngang A) frá klukkan 16-19. Í boði verða veitingar og drykkir fyrir skráða þátttakendur.


Viðburðir

  • 15.05.2025 Héraðsmót HSK í sundi
  • 16.05.2025 Íþróttaþing ÍSÍ
  • 19.05.2025 Morgunfundur um stuðning sveitarfélaga við íþ..
  • 20.05.2025 Umsóknir í Hvatasjóð
  • 09.06.2025 Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 15.06.2025 Bláskógaskokk HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

11.04

Blak, héraðsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, héraðsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

02.01

Bridds, HSK tvímenningur

15.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Héraðsleikar og aldursflokkamó..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.05

Sund, héraðsmót

15.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is