Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Umsóknarfrestur vegna Ferðasjóðs íþróttafélaga

13.01.2025 - 13.01.2025

Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið til umsóknar um styrki vegna keppniferða innanlands á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót ársins 2024. Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudagsins 13. janúar 2025. Íþrótta- og ungmennafélög geta stofnað umsókn nú þegar og skráð inn í hana ferðir sem hafa þegar verið farnar, til að létta sér skráningarvinnu við umsóknarskilin. Á hverju ári er stofnuð ný umsókn í kerfinu og fær þá viðkomandi senda vefslóð í tölvupóst sem gefinn er upp. Sú slóð gildir sem lykill inn í viðkomandi umsókn þar til hún hefur verið send í gegnum kerfið í lok umsóknartímabilsins eða þegar viðkomandi félag hefur skráð allar þær ferðir sem farnar hafa verið á styrkhæf mót innanlands það árið. Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga Upplýsingasíða um sjóðinn. Þegar komið er inn á svæðið smellið þá á Sækja um ferðastyrk sem er ofarlega á síðunni. Þegar búið er að fylla út reitina í skemanu og ýta á Stofna, þá er hægt að skrá inn ferðir. Vefslóð hefur þá líka verið send á skráð netfang tengiliðar og þarf stofnandi umsóknar að muna að gæta vel að vefslóðinni því hún er lykillinn inn á umsóknina út umsóknarferlið. Í hópíþróttagreinum eru einungis Íslandsmót styrkhæf en í einstaklingsíþróttagreinum eru einnig bikarmót, meistaramót og mótaraðir sem gefa stig til Íslandsmeistaratitils styrkhæf. Mótalisti hverrar íþróttar birtist um leið og umsókn hefur verið stofnuð og viðkomandi íþróttagrein valin. Mót sem ekki birtast í fellilista eru ekki styrkhæf.


Viðburðir

  • 15.05.2025 Héraðsmót HSK í sundi
  • 16.05.2025 Íþróttaþing ÍSÍ
  • 19.05.2025 Morgunfundur um stuðning sveitarfélaga við íþ..
  • 20.05.2025 Umsóknir í Hvatasjóð
  • 09.06.2025 Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 15.06.2025 Bláskógaskokk HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

11.04

Blak, héraðsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, héraðsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

02.01

Bridds, HSK tvímenningur

15.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Héraðsleikar og aldursflokkamó..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.05

Sund, héraðsmót

15.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is