Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

22. október 2026

Opið fyrir styrkumsóknir í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ

Opnið er fyrir innsendingu umsókna í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ og hægt er að senda inn umsókn til 1. nóvember. Umsóknarfrestir eru tveir á ári. Fyrri umsóknarfrestur er frá 1. apríl til og með 1. maí og sá seinni frá 1. október til og með 1. nóvember.  Sjóðurinn styrkir félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar í samræmi við stefnu UMFÍ, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi. Sjóðurinn styrkir hins vegar ekki tækjakaup, kaup á áhöldum og búnaði, kostnað við fundi og almennan rekstur félaga. 

Rétt til umsóknar úr sjóðnum eiga sambandsaðilar UMFÍ, aðildarfélög sem eru virk í starfi og deildir innan þeirra.

Styrkur er að öllu jöfnu aldrei hærri en 400.000 kr. Sjóðsstjórn getur þó veitt hærri styrki í undantekningartilfellum.

Alls konar verkefni

Í fyrra bárust 242 umsóknir í Fræðslu- og verkefnasjóð UMFÍ, þar af 160 á seinni umsóknarfresti hans í fyrravetur. Alls fengu 195 umsóknir styrk í fyrra. Heildarúthlutun ársins nam rúmum 28,5 milljónum króna. 

Þar af fengu 122 umsóknir styrk í fyrravetur upp á tæpar 16 milljónir króna. 

Nú í vor bárust 124 umsóknir og hlutu 105 verkefni styrk upp á tæpar 16,3 milljónir króna. 

Dæmi um verkefni sem hlutu úthlutun í nóvember í fyrra: Fyrirlestur um töfra félagsstarfs, verkefni sem miðar að því að fjölga stelpum í íþróttum hjá Þrótti, fjöltyngd heimasíða ÍA, útgáfa og þýðing foreldrahandbókar hjá Ungmennafélagi Grundarfjarðar, ýmis þjálfaranámskeið, stofnun borðtennisdeildar á Stokkseyri, fyrirlestrar um næringu og margt fleira. 

Áherslur í úthlutun

Í samræmi við reglugerð sjóðsins leggur sjóðsstjórn áherslu á að veita styrki til:

  • Fræðslu- og forvarnaverkefna sem eru til þess fallin að auka þekkingu og fagmennsku innan héraðs, félags og/eða deildar. 
  • Þjálfara- og/eða dómaranámskeiða.
  • Verkefna sem stuðla að aukinni þekkingu og varðveislu á menningu og sögu héraðs, félags og/eða héraðs.
  • Verkefna og/eða viðburða sem hafa það að markmiði að efla þjálfun forystufólks, leiðbeinenda og sjálfboðaliða í íþróttastarfsemi.
  • Verkefni sem stuðla að stærðarhagkvæmni og samnýtingu í upplýsingatæknimálum. 

Smelltu hér og lestu meira um sjóðinn

 

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 12.11.2026 Rafrænt málþing um heilsueflingu 60+
  • 14.11.2026 Afreksbúðir ÍSÍ fyrir ungt íþróttafólk
  • 15.11.2026 Unglingamót HSK í sundi
  • 20.11.2026 Formannafundur ÍSÍ 2026
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.11

Sund, unglingamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is