Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

12. maí 2026

Heiðursformaður sambandsins setur HSK met

Fjórir keppendur Umf. Selfoss settu samtals 15 HSK met á stökkmóti öldunga í frjálsíþróttum sem haldið var í Selfosshöllinni 2. maí.

Guðmundur Kr. Jónsson Heiðursformaður HSK var á meðal þátttakenda. Hann setti samtals fimm HSK met á mótinu, en hann tvíbætti met Jóns. M. Ívarssonar í langstökki án atrennu í flokki 75-79 ára og stökk lengst 1,90 metra. Þá þríbætti hann met Jóns M. í þrístökki án atrennu og stökk lengst 5,21 metra. Það er gaman að segja frá því að líklega eru 45 ár síðan Guðmundur Kr. setti síðast HSK met, en hann á enn HSK metin í sömu greinum í flokki 34-39 ára, sett árið 1981. Elsta HSK met Mumma, sem enn stendur, er í þrístökki 18-19 ára utanhúss og var sett á Laugarvatni 12. júlí 1965, viku eftir hið fræga Landsmót UMFÍ.

Kári Jónsson, bróðir Guðmundar Kr., var á meðal þátttakenda og hann tvíbætti HSK metið í langstökki án atrennu í flokki 65-69 ára, stökk lengst 2,36. Tómas Jónsson átti metið og var orðið 28 ára gamalt. Páll Jökull Pétursson bætti svo einu meti við í safnið, en hann bætti eigið met í þrístökki 65-69 ára, stökk 6,08 metra.

Ólafur sonur Guðmundar Kr. keppti á mótinu, en fáir eða engir hafa sett fleiri HSK met í frjálsum en Óli. Hann setti engin met að þessu sinni.

Kristín Björg Albertsdóttir, fjórbætti HSK metið í hástökki án atrennu í flokki 60-64 ára kvenna á mótinu, stökk hæst 0,95 metra. Svo virðist sem þessi árangur sé einnig landsmet, en samkvæmt gagnagrunni FRÍ er þetta í fyrsta sinn sem kona á þessu aldursbili keppir á löglegu móti í greininni. Kristín þríbætti svo HSK metið í hástökki, stökk hæst 1,10 metra. í stökkseríunni náði hún að jafna landsmetið sem var 1,05 og bætti svo landsmetið við næstu hæð.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 19.11.2026 Ráðstefna um íþróttastarf barna
  • 20.11.2026 Formannafundur ÍSÍ 2026
  • 20.11.2026 Fjórðungsglíma Suðurlands
  • 24.11.2026 Skráningarfrestur á útgáfuhóp skýrslunnar Rad..
  • 26.11.2026 Ungt fólk hefur talað, hvað ætlum við að gera..
  • 05.12.2026 Íþróttaeldhugi ársins 2026, óskað eftir tilne..
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

20.11

Fjórðungsglíma Suðurlands

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is