Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

4. maí 2026

Hvöt í fyrsta sinn með lið á unglingamóti HSK í blaki

Héraðsmót unglinga í blaki 16 ára og yngri var haldið á Hvolsvelli föstudaginn 24. apríl sl. Keppt verður bæði í drengja- og stúlknaflokki og senda mátti blönduð lið drengja og stúlkna til leiks á mótið.

Fimm lið tóku þátt í héraðsmóti drengja og þar á meðal var blandað lið Umf. Hvatar. Þetta mun vera í fyrsta sinn sem Hvöt sendir lið til leiks á héraðsmót unglinga í blaki. Mótið var nú haldið í 45. skipti, en fyrsta HSK mótið í unglingaflokki fór fram árið 1980. Dímon A vann alla sína leiki 2-0 og varð þar með HSK meistari fimmta árið í röð. Laugdælir urðu í öðru sæti og Hamar í því þriðja.

Þrjú lið voru skráð í héraðsmót stúlkna, en eitt þeirra forfallaðist vegna veikinda. A lið Dímonar vann B lið félagsins 25-23 og 25-8. Þetta var 20. sigur Dímonar á mótinu, en fyrsta héraðsmót stúlkna var haldið árið 1999.

Heildarúrslit mótsins má sjá á www.hsk.is.

Mynd: Umf. Hvöt tók í fyrsta sinn þátt í héraðsmóti unglinga í blaki.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 19.11.2026 Ráðstefna um íþróttastarf barna
  • 20.11.2026 Formannafundur ÍSÍ 2026
  • 20.11.2026 Fjórðungsglíma Suðurlands
  • 24.11.2026 Skráningarfrestur á útgáfuhóp skýrslunnar Rad..
  • 26.11.2026 Ungt fólk hefur talað, hvað ætlum við að gera..
  • 05.12.2026 Íþróttaeldhugi ársins 2026, óskað eftir tilne..
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

20.11

Fjórðungsglíma Suðurlands

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is