Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

1. apríl 2026

Umf. Biskupstungna hlaut Hvatningarverðlaun HSK

Hvatningarverðlaun HSK voru veitt í annað sinn á héraðsþinginu á Borg. Stjórn HSK ákvað að horfa til verkefna aðildarfélaga sambandsins sem nefnd eru í ársskýrslum félaga 2025, sem borist höfðu fyrir tilskilinn frest þann 20. janúar sl.   

Hvatningarverðlaun HSK fóru til Umf. Biskupstungna  fyrir öflugt félagsstarf og nýbreytni. Félagið hefur gefið út til fjölda ára blaðið Litla-Bergþór sem greinir frá mörgu sem er að gerast í sveitarfélaginu, fréttum og fróðleik og hefur gefið upprennandi greina- og pistlahöfundum frábæran vettvang til að koma hugverkum sínum á framfæri eða að prófa að stíga sín fyrstu skref sem blaðamenn.  Einnig hefur verið öflugt leiklistarstarf til áratuga hjá félaginu sem ekki síður hefur gefið fjölda einstalinga, á öllum aldri, tækifæri til að láta ljós sitt skína á sviði og auka sjálfstraust og framkomu.

Auk hefðbundins íþróttastarfs hefur veirð tekin upp sú nýjung að bjóða uppá Flipp-tíma, ætlaða krökkum í 1.-7. bekk, sem hafa ekki fundið sig í íþróttum en vilja gjarnan taka þátt í skemmtilegum leikjum og taka þannig þátt í samveru og frístundastarfi og hefur þetta m.a aukið til muna þátttöku barna af erlendum uppruna í skipulögðu starfi.

Loks hefur félagið svarað samfélagslegu ákalli um vettvang, sem hvetur til samheldni og félagslegra tengsla, með því að bjóða m.a uppá félagsvist og fjölskyldutíma til að búa til tækifæri til félagsmótunar.

Mynd: Kristín Ísabella Karlsdóttir formaður og Jóna Sigríður Guðmundsd. ritari voru fulltrúar Umf. Biskupstungna á héraðsþinginu.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 15.04.2026 Opið fyrir starfsskýrsluskil
  • 15.04.2026 Ársþing Taekwondosambands Íslands
  • 15.04.2026 Umsóknir í Umhverfisjóð UMFÍ
  • 15.04.2026 Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs HSK
  • 21.04.2026 Aldursflokkamót HSK í sundi
  • 25.04.2026 Skotþing 2026
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

22.03

Borðtennis, héraðsmót

11.01

Frjálsar, aldursflokkamót 11-1...

11.01

Frjálsar, unglingamót 15-22 ár...

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

14.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is