Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

30. mars 2026

Íþróttamaður og íþróttakona HSK 2025

Kylfingurinn Heiðrún Anna Hlynsdóttir, Golfklúbbi Selfoss og motocrossmaðurinn Eric Máni Guðmundsson, Umf. Selfoss, voru valin íþróttafólk HSK árið 2025.

Viðurkenningarnar voru veittar á Héraðsþingi HSK á Borg í Grímsnesi á dögunum.

Heiðrún Anna varð Íslandsmeistari kvenna í holukeppni 2025, stigameistari Golfsambands Íslands og sigraði á fjórum af sex stórmótum á mótaröð þeirra bestu hjá GSÍ. Hún lék með A landsliði kvenna á Evrópumótinu í golfi og er efst íslenskra kvenna á heimslista áhugamanna. Heiðrún spilaði með kvennaliði GOS í 1. deild kvenna á Íslandsmóti golfklúbba þar sem hún sigraði alla sína leiki. Heiðrún Anna er einnig öflug þegar kemur að félagsstarfinu, hún þjálfar börn, unglinga og nýliða hjá GOS og situr einnig í nefndum á vegum klúbbsins.

Eric Máni skipar sér í röð þeirra bestu á Íslandi í motocross. Hann er metnaðarfullur og stundar sportið af miklum krafti og æfir bæði hérlendis og erlendis. Hann varð Íslandsmeistari í MX2 árið 2025 ásamt því að lenda í 2. sæti í enduro 14-19 ára. Eric Máni keppti fyrir hönd Íslands í Motocross of Nations í Bandaríkjunum, sem er stærsta liðakeppni í heimi. Eric Máni hefur þjálfað yngstu iðkendurna hjá motocrossdeild Umf. Selfoss síðustu ár. Hann var í lok árs valinn motocrossmaður ársins 2025 hjá Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambandi Íslands

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 15.04.2026 Opið fyrir starfsskýrsluskil
  • 15.04.2026 Ársþing Taekwondosambands Íslands
  • 15.04.2026 Umsóknir í Umhverfisjóð UMFÍ
  • 15.04.2026 Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs HSK
  • 21.04.2026 Aldursflokkamót HSK í sundi
  • 25.04.2026 Skotþing 2026
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

22.03

Borðtennis, héraðsmót

11.01

Frjálsar, aldursflokkamót 11-1...

11.01

Frjálsar, unglingamót 15-22 ár...

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

14.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is