Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

27. mars 2026

Héraðsþing HSK haldið á Borg á viðvörunardegi

104. héraðsþing HSK  var haldið í Félagsheimilinu Borg í Grímsnesi í gær, fimmtudag. Dagurinn var misviðrasamur, en sem betur fer gekk lægðin fljótt yfir sambandssvæðið og allar veðurviðvaranir féllu úr gildi eftir hádegi og því ekkert til fyrirstöðu að halda þingið

Um 120 manns mættu á þingið, sem nú var haldið í fimmta sinn á Borg.

Líkt og undanfarin ár voru þinggögn, önnur en ársskýrsla HSK, ekki á borðum þingfulltrúa. Þau eru öll aðgengileg á heimasíðu HSK á vefslóðinni www.hsk.is. Þar er bláleitur hnappur sem vísar á héraðsþingsgögnin.

Þingið hófst með ávarpi Guðríðar Aadnegard formanns HSK. Ávarpið má sjá í heild sinni á www.hsk.is, undir liðnum aðsendar greinar. Þá voru ársreikningar lagðir fram og samþykktir. Stjórn HSK lagði fram 13 tillögur á þinginu og voru þær allar samþykktar.

Breyting varð á stjórn sambandsins, en Jón Þröstur Jóhannesson meðstjórnandi gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Guðrún Ása Kristleifsdóttir, sem hefur átt sæti í varastjórn frá 2024, var kosin í stjórn. Ágústa Kristín Hjaltadóttir fyrrverandi formaður Íþróttafélagsins Garps kemur ný inn í varastjórn.

Val á íþróttakonu og íþróttakarli HSK 2025 var kunngjört á þinginu. Golfarinn Heiðrún Anna Hlynsdóttir og motocrosskappinn Eric Máni Guðmundsson voru valin úr hópi þeirra sem tilnefndir voru úr fjölmörgum greinum sem stundaðar eru hjá aðildarfélögum HSK.

Hvatningarverðlaun HSK voru nú veitt í annað sinn. Stjórn ákvað að horfa til verkefna aðildarfélaga sambandsins sem nefnd eru í ársskýrslum félaga, sem borist höfðu fyrir tilskilinn frest. Það var Ungmennafélag Biskupstungna sem hlaut þessi verðlaun fyrir fyrir öflugt félagsstarf og nýbreytni.

HSK heiðraði tvo einstaklinga á héraðsþinginu. Svanur Ingvarsson á Selfossi var valinn öðlingur ársins og Guðmundur Karl Sigurdórsson fjölmiðlamaður og fyrrverandi formaður Knattspyrnufélags Árborgar var sæmdur silfurmerki HSK.  

Ungmennafélag Íslands heiðraði fjóra einstaklinga úr Grímsnes- og Grafningshreppi. Lísa Thomsen var sæmd gullmerki UMFÍ og Guðrún Ása Kristleifsdóttir, Kjartan Helgason og Hörður Óli Guðmundsson voru sæmd starfsmerki UMFÍ.

Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands heiðraði þau Anný Ingimarsdóttir ritara stjórnar HSK og Gylfa Þorkelsson, fyrrverandi formann Körfuknattleiksfélags Selfoss, með gullmerki ÍSÍ.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 15.04.2026 Opið fyrir starfsskýrsluskil
  • 15.04.2026 Ársþing Taekwondosambands Íslands
  • 15.04.2026 Umsóknir í Umhverfisjóð UMFÍ
  • 15.04.2026 Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs HSK
  • 21.04.2026 Aldursflokkamót HSK í sundi
  • 25.04.2026 Skotþing 2026
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

22.03

Borðtennis, héraðsmót

11.01

Frjálsar, aldursflokkamót 11-1...

11.01

Frjálsar, unglingamót 15-22 ár...

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

14.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is