Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

3. desember 2025

Félagar Bjössa bónda unnu sveitakeppni HSK

Hin árlega sveitakeppni HSK í bridds var haldin í Fjölbrautaskóla Suðurlands 29. nóvember sl. og mættu 14 sveitir til leiks, sem allar hétu eitthvað og fæstar kenndar við félag eða heimahaga keppenda.Spilaðir voru 8 spila leikir með monrad fyrirkomulagi.  Mótið taldi til silfurstiga og sjá má silfurstig keppenda á heimasíðu Bridgesambands Suðurlands, slóðin er

https://bridge.is/media/1f4pduyp/hsk-m%C3%B3ti%C3%B0-2025-silfurstig.pdf

Úrslit urðu þau að sveitin Félagar Bjössa Bónda varð HSK meistari með 103,01 stig. Í sigursveitinni voru þeir Björn Snorrason, Runólfur Jónsson, Guðmundur Þ Gunnarsson og Kristján Már Gunnarsson.

Gervigreind varð í öðru sæti með 89,43 stig og þar spiluðu Sigurður Jón Björgvinsson, Sveinn Ragnarsson, Hermann Friðriksson og Gunnlaugur Sævarsson. Íslenskur Landbúnaður tók svo bronsið með 87,21 stig. Í sveitinni voru Höskuldur Gunnarsson, Þröstur Árnason, Helgi Hermannsson og Brynjólfur Gestsson.

Heildarúrslit má sjá á https://www.bridge.is/  og lokastöðuna má sjá á www.hsk.is.

Mynd: Sigursveitin tekur við verðlaunum. F.v. Björn, Runólfur, Guðmundur Þ og Kristján Már.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is