Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

3. desember 2025

Ábendingar um öfluga sjálfboðaliða í íþróttahreyfingunni

Íþróttaeldhugi ársins verður tilnefndur samhliða lýsingu á kjöri Íþróttamanns ársins 2025. Lottó og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands standa fyrir þessari tilnefningu.

Almenningi gefst kostur á að senda inn ábendingar um öfluga sjálfboðaliða til 5. desember á vefslóðinni https://isi.is/fraedsla/ithrottaeldhugi-2025/

Leitað er eftir framúrskarandi sjálfboðaliðum sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarf, t.d. með því að vinna  að framkvæmd móta/leikja, safna fjármunum, bæta aðstöðu, sitja í stjórnum eða auka þátttöku hvar á landinu sem er. Opnað hefur verið fyrir ábendingar en rétt er að geta þess að launað starfsfólk íþróttahreyfingarinnar kemur ekki til greina.

„Íþróttastarfið á Íslandi stendur í mikilli þakkarskuld við alla þá einstaklinga sem gefið hafa af tíma sínum til að sinna sjálfboðaliðastarfi fyrir íþróttahreyfinguna. Með þessari viðurkenningu viljum við lyfta upp starfi sjálfboðaliðans og þakka fyrir hið óeigingjarna starf sem unnið er af fjölda fólks um land allt. Við hvetjum einstaklinga til að senda inn tilnefningar” segir Willum Þór Þórsson forseti ÍSÍ.

Sérstök valnefnd hefur verið skipuð en í henni sitja: Þórey Edda Elísdóttir formaður, Snorri Einarsson, Dagur Sigurðsson, Kristín Rós Hákonardóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir. Valnefndin mun fara yfir innsendar tilnefningar, velja þrjá aðila og taka lokaákvörðun um hver hlýtur titilinn Íþróttaeldhugi ársins 2025. Íþróttaeldhugi ársins 2025 fær afhentan glæsilegan verðlaunagrip frá Lottó.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is