Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

26. nóvember 2025

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar hefur veitt 86 milljónir í styrki í ár

Hvatasjóður íþróttahreyfingarinnar er nýr sjóður á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og Ungmennafélags Íslands með stuðningi Mennta- og barnamálaráðuneytis. Sjóðurinn tengist stofnun átta svæðisstöðva íþróttahéraða á síðasta ári og markmiðum um eflingu íþróttastarfs á landsvísu.

Sjóðurinn styrkir verkefni sem miða að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna í íþróttum með áherslu á þátttöku barna með fötlun, af tekjulægri heimilum og með fjölbreyttan tungumála og menningarbakgrunn. 

Íþróttahéruð, íþróttafélög og deildir þeirra, sérsambönd í samstarfi við íþróttahéruð, félög eða deildir félaga geta sótt um styrk í Hvatasjóðinn. Nánari upplýsingar um sjóðinn eru á https://www.umfi.is/styrkir/hvatastjodur/.

Heildarúthlutun úr Hvatasjóði árinu nemur rúmum 86 milljónum króna sem skiptast á milli 154 verkefna. Í fyrstu úthlutun sjóðsins í janúar fengu 30 verkefni 20,3 milljónir í styrki. Í annað sinn hlutu 72 verkefni styrk upp á rúmar 38 milljónir króna og í nóvember voru 52 verkefni styrkt með samtals 27,8 milljón króna framlagi. Styrkupphæðir einstakra verkefna voru frá 100.000 – 1.500.000 kr.

14 verkefni aðildarfélaga HSK hlutu styrk úr sjóðnum í ár, samtals að upphæð 7.350.000 kr. og hér að neðan má sjá þau verkefni sem hlutu styrk á sambandssvæði HSK.

 

Úthlutun til aðildarfélaga HSK 2025:

Fyrsta úthlutun í janúar

Nafn umsækjenda                 Verkefni                                                                      Styrkur

HSK og Umf. Selfoss                 Íslandsleikar                                                                1.000.000

HSK og Umf. Selfoss                 Íþróttir fyrir börn með fatlanir                                       1.500.000

Önnur úthlutun í júní

Umf. Selfoss, knattspyrnudeild Fótbolti fyrir alla                                                               250.000

Umf. Hekla                               Frá brottfalli til bætinga                                                  1.000.000

Íþr.f. Uppsveita, körfukn.deild Uppbygging körfuboltastarfs Uppsveita                             300.000

Umf. Biskupstungna                 Allir saman                                                                        100.000

Umf. Selfoss, Suðradeild           Sumarfrístund fyrir börn með sér og stuðningsþarfir       700.000

Umf. Selfoss                             Íþróttir fyrir fötluð börn og unglinga hjá Umf. Selfoss

     -Framhaldsumsókn                                                          1.000.000

Þriðja úthlutun í nóvember

Íþr.f Hamar                              Hamarsport unglingar                                                        250.000

Umf. Laugdæla                       Körfubolti fyrir stúlkur frá 16-18 ára                                   100.000

Umf. Hvöt                               Spilum pílu saman                                                             250.000

Umf. Hekla                             Inngilding barna af erlendum uppruna                               350.000

Umf. Laugdæla                     Íþróttaskóli barnanna                                                           250.000

Umf. Selfoss, Knattsp.d/Suðrad. Fótbolti fyrir alla                                                            300.000

Staðfesting á áframhaldandi fjármögnun liggur ekki fyrir og helst hún í hendur við fjármögnun til svæðisstöðva enda er hvatasjóðurinn einn hluti verkefnisins. Vonir standi til þess að svör berist ÍSÍ og UMFÍ fyrir áramót. Sjóðurinn á hins vegna ennþá fjármagn til þess að úthluta á árinu 2026.

 

Mynd: Meðal verkefna sem hlutu styrk úr Hvatasjóðnum voru Íslandsleikarnir, sem haldnir voru á Selfossi í lok mars.

 

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 17.01.2026 Skautafjör á Laugarvatni
  • 19.01.2026 Fundur með félögum í uppsveitum Árnessýslu
  • 20.01.2026 Skil á skýrslu um starf aðildarfélaga HSK
  • 21.01.2026 Ráðstefnan Meira eða minna afreks?
  • 09.02.2026 Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 19.02.2026 Formannafundur HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

08.12

Sveitakeppni HSK í skák

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

16.11

Unglimgamót HSK í sundi

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is