Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

24. nóvember 2025

Stefna ÍSÍ um verndun og velferð samþykkt á Formannafundi ÍSÍ

Formannafundur ÍSÍ var haldinn í golfskála Golfklúbbsins Leynis á Akranesi sl. föstudag, þann 21. nóvember. Fundurinn var vel sóttur en um er að ræða árlegan upplýsingafund framkvæmdastjórnar ÍSÍ, og formanna og framkvæmdastjóra sérsambanda, héraðssambanda og íþróttabandalaga. Fjölmargir fundargestir nýttu ferðina á Skagann í að skoða glæsileg og ný íþróttamannvirki, sem nú hafa verið tekin í notkun að Jaðarsbökkum á Akranesi, áður en Formannafundurinn var settur í golfskálanum síðdegis.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, setti fundinn og flutti ávarp. „Ég held það hafi aldrei verið meiri þörf á því að við náum öflugri samstöðu um það að tala máli íþróttahreyfingarinnar og ná saman með stjórnvöldum í auknum stuðningu til þess að nýta krafta hreyfingarinnar áfram til þess að takast á við þær fjölmörgu áskoranir sem að þjóðin og við stöndum frammi fyrir þegar kemur að lýðheilsu og auknum kröfum og auknum áskorunum, ekki síst gagnvart börnum okkar og unglingum,“ sagði Willum Þór meðal annars.

Að loknu ávarpi forseta ÍSÍ flutti Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, skýrslu framkvæmdastjórnar ÍSÍ og þá greindi Olga Bjarnadóttir, 2. varaforseti ÍSÍ og formaður stjórnar Afreksmiðstöðvar Íslands (AMÍ), frá þeirri vinnu sem stendur yfir hjá Afreksmiðstöðinni. Daníel Jakobsson, gjaldkeri ÍSÍ, tók svo við og fór yfir fjármál ÍSÍ.

Helga Þórðardóttir, lögfræðingur á skrifstofu ÍSÍ, fór yfir stefnu um verndun og velferð í íþróttahreyfingunni, sem kynnt var á 77. Íþróttaþingi í maí síðastliðnum. Var samþykkt á þinginu að leggja fullunna stefnu fram til afgreiðslu á Formannafundi 2025. Stefnan hefur nú verið fullkláruð og staðfest af framkvæmdastjórn ÍSÍ og var hún borin upp til samþykktar á Formannfundinum og samþykkt samhljóða.

Síðast en ekki síst tóku allir fundargestir þátt í stefnumótunarvinnu, undir stjórn Ingibjargar Aspar Stefánsdóttur frá ráðgjafafyrirtækinu Expectus. Var vel unnið á öllum borðum og ýmislegt gagnlegt og áhugavert sem kom út úr þeirri vinnu, sem mun nýtast inn í stefnumótunarvinnuna sem framundan er fyrir íþróttahreyfinguna í heild sinni. Sú vinna verður umfangsmikil og mun fara fram á næstu tveimur árum með aðkomu bæði ÍSÍ og UMFÍ, sambandsaðilum þeirra og grasrótinni.

Helgi S. Haraldsson varaformaður HSK og Engilbert Olgeirsson framkvæmdastjóri HSK voru fulltrúar HSK á fundinum.

Mynd: Fundarfólk á Formannafundi ÍSÍ 2025.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 17.01.2026 Skautafjör á Laugarvatni
  • 19.01.2026 Fundur með félögum í uppsveitum Árnessýslu
  • 20.01.2026 Skil á skýrslu um starf aðildarfélaga HSK
  • 21.01.2026 Ráðstefnan Meira eða minna afreks?
  • 09.02.2026 Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 19.02.2026 Formannafundur HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

08.12

Sveitakeppni HSK í skák

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

16.11

Unglimgamót HSK í sundi

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is