Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

21. nóvember 2025

Íþróttafélagið Hamar Fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Íþróttafélagið Hamar fékk viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ á Hótel Örk í Hveragerði þriðjudaginn 18. nóvember síðastliðinn. 

Kári Mímisson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ afhenti fulltrúum félagsins viðurkenninguna fyrir aðalstjórn og sjö deildir félagsins, badmintondeild, blakdeild, fimleikadeild, knattspyrnudeild, körfuknattleiksdeild, lyftingadeild og sunddeild. 

„Þetta eru tímamót í starfi Hamars og markmiði náð sem stefnt hefur verið að undanfarin ár.  Því fylgir gleði, stolt og þakklæti að ná markmiðum“, sagði Þorsteinn T. Ragnarsson formaður Íþróttafélagsins Hamars af þessu tilefni og bætti við „verkefnið hófst innan félagsins í mars 2023 og var áætlað að ferlið tæki um og yfir þrjú ár að klárast. Því var lokið á innan við tveimur árum, þökk sé gríðarlega öflugu starfi Guðjónu Bjarkar Sigurðardóttur, framkvæmdastjóra Hamars.“

Nú eru sex aðildarfélög HSK virk fyrirmyndarfélög ÍSÍ. Þau eru, auk Hamars, Golfklúbbur Selfoss, Hestamannafélagið Sleipnir, Íþróttafélagið Dímon og sex deildir félagsins, Körfuknattleiksfélag Selfoss og Umf. Selfoss og átta deildir félagsins.

Á myndinni eru frá vinstri, Kári Mímisson, Þorsteinn T. Ragnarsson formaður Hamars, Helga Dögg Snorradóttir, Birgitta Ýr Sævarsdóttir, Einar Alexander Haraldsson, Magnús Tryggvason, Grétar Freyr Gunnarsson, Hrund Guðmundsdóttir og Valdimar Hafsteinsson. 

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 17.01.2026 Skautafjör á Laugarvatni
  • 19.01.2026 Fundur með félögum í uppsveitum Árnessýslu
  • 20.01.2026 Skil á skýrslu um starf aðildarfélaga HSK
  • 21.01.2026 Ráðstefnan Meira eða minna afreks?
  • 09.02.2026 Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 19.02.2026 Formannafundur HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

08.12

Sveitakeppni HSK í skák

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

16.11

Unglimgamót HSK í sundi

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is