Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

14. nóvember 2025

Áframhaldandi stuðningur við Allir með

Á Allir með leikunum sem fram fóru í Laugardalshöllini sl. laugardag var greint frá því að ríkisvaldið væri búið að ákveða að styrkja áfram verkefnið Allir með. Veittar verða 60 milljónir króna til að auka þátttöku og virkni fatlaðs fólks í íþróttastarfi, einkum fatlaðra barna og ungmenna.  Verkefnið er liður í að ná markmiðum 30. greinar samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks sem fjallar meðal annars um þátttöku fatlaðs fólks í íþróttum.

Um er að ræða áframhald á verkefninu „Allir með“ sem hófst árið 2022 undir merkjunum „Farsælt samfélag fyrir öll – brúum bilið“. Ábyrgð þess er á höndum Íþróttasambands fatlaðra sem vinnur það í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og Ungmennafélag Íslands. Bakhjarlar verkefnisins eru ráðuneytin þrjú, ÖBÍ réttindasamtök og Landssamtökin Þroskahjálp. 

Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Alma Möller heilbrigðisráðherra og Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra mættu á leikana og tilkynntu um styrkinn. Fjöldi fatlaðra barna mættu á leikana og tók þátt í fjölbreyttum íþróttum, svo sem handbolta, körfubolta, fimleikum, frjálsum íþróttum, badminton, keilu, pílu, klifri og jassballet.

 

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 17.01.2026 Skautafjör á Laugarvatni
  • 19.01.2026 Fundur með félögum í uppsveitum Árnessýslu
  • 20.01.2026 Skil á skýrslu um starf aðildarfélaga HSK
  • 21.01.2026 Ráðstefnan Meira eða minna afreks?
  • 09.02.2026 Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 19.02.2026 Formannafundur HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

08.12

Sveitakeppni HSK í skák

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

16.11

Unglimgamót HSK í sundi

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is