Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

14. nóvember 2025

Ritunarsamkeppni Umf. Þjótanda á 10 ára afmælisári

Í tilefni af 10 ára afmæli Ungmennafélagsins Þjótanda hefur félagið blásið til Ritunarsamkeppni fyrir börn og unglinga 16 ára og yngri.

Einkunnarorð keppninnar eru:
Samfélag
Þátttaka
Þjótandi

Þátttakendur hafa frjálsar hendur. Það má skrifa smásögu, ljóð, frásögn, dagbókarfærslu eða í raun hvað sem ykkur dettur í hug. Svo er um að gera að myndskreyta að vild.

Hámarkslengd er ein A4 blaðsíða og skulu þátttakendur merkja verk sitt aftan á blaðsíðunni með nafni, heimilisfangi og símanúmeri. Hægt verður að skila inn verkum hjá ritara Flóaskóla en einnig er hægt að senda þau í tölvupósti á netfangið halla@floahreppur.is.

Skilafrestur er til 16. nóvember, sem er bæði afmælisdagur Umf. Þjótanda og Dagur íslenskrar tungu.

Ungmennafélagið Þjótandi veitir verðlaun fyrir þrjú bestu verkin og munu þau birtast í Áveitunni í desember. Öll verk sem taka þátt verða til sýnis á Skötuveislu Umf. Þjótanda á Þingborg í Þorláksmessu.

Skauta- og pizzuveisla á afmælisdaginn

Fleira stendur til á afmælisárinu, en félagsfólki Þjótanda er boðið í skauta- og pizzuveislu í Egilshöll á afmælisdaginn sjálfan, sunnudaginn 16. nóvember nk. milli kl. 14:00 og 16:00. Í boði verða rútuferðir úr Flóanum fyrir þá sem þess óska.

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • 10.10.2026 Samtal, viðburður að frumkvæði forseta Ísland..
  • 13.10.2026 Styrkir í þágu farsældar barna
  • 28.10.2026 Skráningar á Héraðsmót karla og kvenna í blak..
  • 30.10.2026 Landsþing Landssambands hestamanna
  • 01.11.2026 Syndum - Landsátak í sundi
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

04.11

Blak, héraðsmót kvenna

05.11

Blak, héraðsmót karla

07.11

Bridds, sveitakeppni HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is