Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráđ
  • |
  • Ađildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerđir
  • |
  • Fundargerđir
  • |
  • Verkefnasjóđur
  • |
  • Um HSK
Hérađssambandiđ Skarphéđinn

 

1. nóvember 2024

Tölfrćđi ÍSÍ fyrir áriđ 2023 komin út

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) hefur gefið út tölfræði fyrir árið 2023 sem unnin var upp úr starfsskýrslum íþróttahreyfingarinnar, sem skilað var inn til sambandsins í ár. Hægt er að sjá í Tölfræði 2023 yfirlit yfir iðkendur, skipt niður á íþróttahéruð og sérsambönd. Um er að ræða einstök gögn sem gefa gott og ítarlegt yfirlit yfir þróun íþrótta á Íslandi og umfang og samsetningu íþróttahreyfingarinnar. Um 90% gagnanna, sem skilað er inn sjálfvirkt, eru send inn frá Abler, kerfi sem íþróttahreyfingin er að nota í sínum daglega rekstri. 

Hér má finna tölfræðina 2023

Hægt er að skoða iðkun eftir kyni og aldurbili (t.d. sérsamband línurit) og einnig er hægt er að skoða hvaða íþróttagreinar eru stundaðar í hverju héraði fyrir sig, fjölda í íþróttagrein, iðkun eftir póstnúmerum og fleira áhugavert. Ef skoðað er mælaborðið með yfirskriftinni „Samanburður gagna 2023-2022” þá er hægt að skoða breytinguna sem hefur orðið hefur á milli ára í íþróttahéruðum og íþróttagreinum. Unnið er með Power BI til að greina og birta gögn myndrænt fyrir notendur. Það hefur aukið möguleika notenda á skoðun og flokkun gagna. 
Tvær tegundir af mælaborðum hafa verið útbúnar og gefnar út og fleiri eru í þróun:  
*Tölfræði 2023 - heildar skrá með öllum upplýsingum. 

*Samanburður gagna 2023 og 2022 - þar sem verið er að bera saman iðkanir á milli þessara ára, bæði hjá íþróttahéruðum og sérsamböndum.  

Mælaborðið „Samanburður 2020–2023”, þar sem verið er að bera saman iðkendur sérsambanda á þessum fjórum árum og mælaborð um stjórnarfólk íþróttahreyfingarinnar 2023, eru í þróun og vinnslu og verða gefin út fljótlega.

 

Deila

Tilbaka

Viđburđir

  • 15.07.2025 Hérađsmót fatlađra í frjálsum íţróttum
  • 15.07.2025 Hérađsmót HSK í frjálsum íţróttum
  • 27.07.2025 Landsmót UMFÍ 50+
  • 31.07.2025 Unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöđum
  • Fleiri viđburđir
  • HSK met
  • Sögulegur fróđleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit hérađsmóta

15.05

Sund, hérađsmót 2025

29.04

Sund, aldursflokkamót 2025

11.04

Blak, hérađsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, hérađsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Hérađsmótiđ í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.07

Frjálsar, hérađsmót fatlađra

15.07

Frjálsar, hérađsmót

logo

Hérađssambandiđ Skarphéđinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is