Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráđ
  • |
  • Ađildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerđir
  • |
  • Fundargerđir
  • |
  • Verkefnasjóđur
  • |
  • Um HSK
Hérađssambandiđ Skarphéđinn

 

31. október 2024

Landsátak í sundi ađ hefjast

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2024.

Setning Syndum verður að þessu sinni í Ásvallalaug í Hafnarfirði, föstudaginn 1. nóvember.

Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Á síðasta ári syntu þátttakendur samtals 26.862,93 km, eða rúmlega 20 hringi í kringum landið. Það væri gaman að sjá sem flestar sundlaugar taka þátt. Í fyrra voru skólar og sundfélög einnig sérstaklega hvött til þátttöku og svo verður einnig í ár.

Syndum - Landsátak í sundi, er framhald af Íþróttaviku Evrópu og styrkt af Evrópusambandinu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Það er margt sem við getum gert til að bæta og viðhalda líkama og sál og allt telur. Íslendingar hafa verið duglegir að stunda sund enda búum við vel að góðum sundlaugum um allt land. Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman.

Syndum saman í kringum Ísland. Allir skráðir sundmetrar safnast saman og verða sýnilegir á forsíðu www.syndum.is

Þar verður einnig hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt í kringum Ísland. Á síðunni má jafnframt finna skemmtilegan fróðleik og upplýsingar um allar sundlaugar landsins.
Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. 

Skráningarblaðið er hugsað fyrir þá sem geta ekki notað tölvu til skráningar á metrum, en auðveldast er að starfsfólk sundlauga skrái samtöluna inn í kerfið t.d vikulega.
Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband í gegnum syndum@isi.is

 

Deila

Tilbaka

Viđburđir

  • 15.07.2025 Hérađsmót fatlađra í frjálsum íţróttum
  • 15.07.2025 Hérađsmót HSK í frjálsum íţróttum
  • 27.07.2025 Landsmót UMFÍ 50+
  • 31.07.2025 Unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöđum
  • Fleiri viđburđir
  • HSK met
  • Sögulegur fróđleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit hérađsmóta

15.05

Sund, hérađsmót 2025

29.04

Sund, aldursflokkamót 2025

11.04

Blak, hérađsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, hérađsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Hérađsmótiđ í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.07

Frjálsar, hérađsmót fatlađra

15.07

Frjálsar, hérađsmót

logo

Hérađssambandiđ Skarphéđinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is