Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

5. september 2024

Ólympíuhlaup ÍSÍ að hefjast

hsk.is

Ólympíuhlaup ÍSÍ áður Norræna skólahlaupið hefur verið fastur liður í skólastarfi margra grunnskóla allt frá 1984 þegar það fór fyrst fram. Verkefnið hefst formlega í dag, 5. september og miðað er við að því verði lokið fyrir 10. október nk.

Með Ólympíuhlaupi ÍSÍ er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og líðan. Nemendur hafa hingað til getað valið á milli þriggja vegalengda þ.e. 2,5 km, 5 og 10 km, en nú geta skólarnir ákveðið þessar vegalengdir sjálfir allt eftir því hvað umhverfi skólanna býður upp á. Að hlaupinu loknu fær hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá fjölda þeirra sem hlupu ásamt heildarvegalengd sem hlaupin var. Það skal tekið fram að hér er fyrst og fremst lögð áhersla á holla hreyfingu og að allir taki þátt. 

Mjólkursamsalan, MS, hefur frá upphafi styrkt útgáfu viðurkenningarskjala á myndarlegan hátt og samstarfsaðili að þessu verkefni er eins og áður Íþrótta- og heilsufræðingafélag Íslands.

Góð þátttaka hefur verið í hlaupinu frá upphafi og er það fastur liður í skólastarfi margra grunnskóla á landinu. Ólympíuhlaupið er liður í Íþróttaviku Evrópu og er hlaupið formlega opnað í einum skóla ár hvert.

Þrír skólar, sem ljúka þátttöku í hlaupinu fyrir 10. október og skila inn upplýsingum til ÍSÍ eru dregnir út. Hver þeirra þriggja skóla fær 150.000 króna inneign í Altis, en Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu. Þeir skólar sem ljúka hlaupinu eftir 10. október geta eftir sem áður skilað inn upplýsingum og fengið send viðurkenningaskjöl, en gert er ráð fyrir að allir skólar hafi lokið hlaupinu fyrir árslok.

Skráning fer fram hér.

Nánari upplýsingar gefur Linda Laufdal verkefnastjóri, Fræðslu- og almenningsíþróttasviðs ÍSÍ með tölvupósti linda@isi.is eða í síma 8430645.  

 

 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 24.06.2025 Héraðsleikar og Aldursflokkamót HSK í frjálsu..
  • 26.06.2025 Íslandsmót í hestaíþróttum á Selfossi
  • 27.06.2025 Sumarbúðir ÍF
  • 15.07.2025 Héraðsmót fatlaðra í frjálsum íþróttum
  • 15.07.2025 Héraðsmót HSK í frjálsum íþróttum
  • 27.07.2025 Landsmót UMFÍ 50+
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

15.05

Sund, héraðsmót 2025

29.04

Sund, aldursflokkamót 2025

11.04

Blak, héraðsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, héraðsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

24.06

Frjálsar, héraðsleikar og aldu..

15.07

Frjálsar, héraðsmót fatlaðra

15.07

Frjálsar, héraðsmót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is