Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

15. maí 2017

2,6 milljónum úthlutað við fyrri úthlutun ársins

Reglugerð um Verkefnasjóð HSK var breytt á síðasta héraðsþingi og framvegis verður úthlutað úr sjóðnum tvisvar á ári. Stjórn Verkefnasjóðs HSK kom saman til fundar fyrr í vikunni og tók fyrir umsóknir sem bárust fyrir 1. apríl sl. Alls bárust 35 umsóknir og

Rétt er að geta þess að sjóðsstjórn ákvað á fundinum að veita að hámarki einn afrekstyrk á ári til hvers afreksmanns og það sama á við um styrki vegna landsliðsvals einstaklinga.  Það verða því ekki veittir styrkir í haust til þeirra einstaklinga sem fá styrki við fyrri úthlutun ársins.

Forsendur úthlutunar eru þær sömu og í fyrra.  Í reglugerð um sjóðinn segir m.a. "Tilgangur sjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf á sambandssvæði Héraðssambandsins Skarphéðins. Sjóðurinn veitir ekki styrki til mannvirkjagerðar. Að öðru leyti fer úthlutun úr sjóðnum eftir mati stjórnar sjóðsins."   

Við úthlutun tók sjóðsstjórn mið af eftirtöldum forsendum:                   

Val í landslið                                                                                        35.000 kr. á einstakling

Menntun þjálfara, erlendis                                                                   30.000 kr. á einstakling

Menntun þjálfara og dómara, innanlands, en þó að hámarki                10.000 kr. á einstakling

Nýjungar í starfi/útbreiðsluverkefni/sérstök verkefni                            35.000 kr. á félag/nefnd/ráð

Námskeiðahald, 50 %  af útlögðum kostnaði, en þó að hámarki           40.000 kr. á félag/nefnd/ráð

Afreksstyrkur, þar með talið landsliðsval (þarf að hafa verið valin/n í A-landslið) 120.000 kr. á einstakling

 

Þessi viðmið verða þau sömu við úthlutun í haust. Þau verða svo endurskoðuð á næsta ári, eftir að reynsla er komin á að veita styrki tvisvar sinnum á ári.

 

 

Úthlutun sjóðsins er sem hér segir:

Umsækjandi

Heiti verkefnis

Úthlutun

Fimleikadeild Umf. Selfoss

Þjálfaranámskeið innanlands, sex þátttakendur

60.000

Fimleikadeild Umf. Selfoss

Þjálfaranámskeið innanlands, 14 þátttakendur

140.000

Fimleikadeild Umf. Selfoss

Þjálfaranámskeið innanlands, þrír þátttakendur

30.000

Fimleikadeild Umf. Selfoss

A- landsliðsval og fimm afreksstyrkir

600.000

Fimleikadeild Umf. Selfoss

Landsliðsval yngri landsliða, tveir einstaklingar

70.000

Golfklúbbur Selfoss

Landsliðsval yngri landsliða, tveir einstaklingar

70.000

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss

Landsliðsval yngri landsliða, þrír einstaklingar

105.000

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss

A- landsliðsval og einn afreksstyrkur

120.000

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss

Landsliðsval yngri landsliða, sex einstaklingar

210.000

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss

Landsliðsval yngri landsliða, einn einstaklingur

35.000

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss

Þjálfaranámskeið innanlands, tveir þátttakendur

20.000

Hestamannafélagið Geysir

Ritun 70 ára sögu félagsins

35.000

Júdódeild Umf. Selfoss

A- landsliðsval og einn afreksstyrkur

120.000

Júdódeild Umf. Selfoss

Landsliðsval yngri landsliða, þrír einstaklingar

105.000

Knattspyrnudeild Selfoss

Þjálfaranámskeið innanlands, einn þátttakandi

10.000

Knattspyrnudeild Selfoss

Þjálfaranámskeið erlendis, einn þátttakandi

30.000

Knattspyrnudeild Selfoss

Þjálfaranámskeið innanlands, 31 þátttakandi

310.000

Knattspyrnudeild Selfoss

Þjálfaranámskeið innanlands, fimm þátttakendur

50.000

Knattspyrnudeild Selfoss

Þjálfaranámskeið innanlands, einn þátttakandi

10.000

Taekwondodeild Umf. Selfoss

Landsliðsval yngri landsliða, einn einstaklingur

35.000

Taekwondodeild Umf. Selfoss

A- landsliðsval og einn afreksstyrkur

120.000

Taekwondodeild Umf. Selfoss

A- landsliðsval og einn afreksstyrkur

120.000

Taekwondodeild Umf. Selfoss

Þjálfaranámskeið erlendis, tveir þátttakendur

60.000

Umf. Hrunamanna

Þjálfaranámskeið innanlands, einn þátttakandi

10.000

Umf. Hrunamanna

Landsliðsval yngri landsliða, einn einstaklingur

35.000

Umf. Hrunamanna

Þjálfaranámskeið innanlands, einn þátttakandi

10.000

Umf. Hrunamanna

Þjálfaranámskeið innanlands, einn þátttakandi

10.000

Umf. Þjótandi

Munasýning, séstakt verkefni

35.000

Umf. Þjótandi

Handbolti, nýjung í starfi

35.000

Umf. Þór, frjálsíþróttadeild

Þjálfaranámskeið innanlands, einn þátttakandi

10.000

Samtals:

 

2.610.000

     

 

Verkefni sem hljóta ekki styrki úr sjóðnum eru:

Gerð söguskilta

Skönnun ársskýrslna 

Keppnishald og þátttaka í mótum 

Keppnisferðir erlendis

 

 

Sækja þarf ofantalda styrki fyrir 31. desember 2017. Eftir það fellur umsóknin niður, enda verður þá litið svo á að verkefnið hafi ekki verið framkvæmt.

Þegar hefur verið opnað fyrir umsóknir vegna næstu úthlutunar, en umsóknarfrstur er til 1. október nk. Sækja þarf  um á www.hsk.is. 

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 15.04.2026 Opið fyrir starfsskýrsluskil
  • 15.04.2026 Ársþing Taekwondosambands Íslands
  • 15.04.2026 Umsóknir í Umhverfisjóð UMFÍ
  • 15.04.2026 Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs HSK
  • 21.04.2026 Aldursflokkamót HSK í sundi
  • 25.04.2026 Skotþing 2026
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

22.03

Borðtennis, héraðsmót

11.01

Frjálsar, aldursflokkamót 11-1...

11.01

Frjálsar, unglingamót 15-22 ár...

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

14.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is