Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

8. nóvember 2016

Átta HSK met sett á Gaflaranum

Fjölmennt lið af sambandssvæðinu tók þátt á Gaflaranum  í frjálsíþróttahúsinu í Kaplakrika sl. laugardag.  Mótið er  frjálsíþróttamót fyrir 10 – 14 ára keppendur.

Keppendur af sambandssvæðinu stóðu sig frábærlega og settu samtals átta HSK met á mótinu.

Í 11 ára flokki pilta setti Daði Kolviður Einarsson Umf. Selfoss met í 400 metra hlaupi, hann hljóp á 70,05 sek. Teitur Örn Einarsson átti gamla metið, 74,13 sek.

Sebastian Þór Bjarnason Selfossi bætti 11 ára gamalt met Ármanns Óla Ólafssonar í 400 metra hlaupi í 12 ára flokki þegar hann hljóp hringina tvo á 65,93 sek.  Gamla metið var 67.42 sek.

Sindri Freyr Seim Sigurðsson Umf. Heklu bætti ársgamlt HSK met Dags Fannars Einarssonar í 400 metra hlaupi í 13 ára flokki um rúmar tvær sekúndur. Sindri hljóp á 58,10 sek, en gamla metið var 60,12 sek.

Eva María Baldursdóttir Selfossi tvíbætti HSK metið í hástökki innanhúss í 13 og 14 ára flokkum á mótinu og setti því samtals fjögur met.  Metið í þessum flokkum var 1,55 metrar, en hún stökk fyrst yfir 1,56 metra og bætti um betur og stökk einnig yfir 1,60 metra. Dagný Hanna Hróbjartsdóttir átti metið í þessum flokkum, en hún deildi því með Dagnýju Lísu Davíðsdóttur í 14 ára flokknum.

Loks bætti Dagur Fannar Einarsson Umf. Selfoss eigið met í 400 metra hlaupi í 14 ára flokki.  Hann hljóp á 57,62 sek. Gamla metið, sem hann setti í mars sl., var 58,14 sek.

Heildarúrslit mótsins má sjá á www.fri.is.

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 15.04.2026 Opið fyrir starfsskýrsluskil
  • 15.04.2026 Ársþing Taekwondosambands Íslands
  • 15.04.2026 Umsóknir í Umhverfisjóð UMFÍ
  • 15.04.2026 Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs HSK
  • 21.04.2026 Aldursflokkamót HSK í sundi
  • 25.04.2026 Skotþing 2026
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

22.03

Borðtennis, héraðsmót

11.01

Frjálsar, aldursflokkamót 11-1...

11.01

Frjálsar, unglingamót 15-22 ár...

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

14.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is