Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

3. september 2015

11 HSK met sett og Óli áttfaldur meistari

Meistaramót öldunga í frjálsíþróttum var haldið á Kópavogsvelli um síðustu helgi. Fjórir keppendur af sambandssvæði HSK tóku þátt og unnu til fjölda verðlauna og settu samtals 11 HSK met.  Auk þess varð lið HSK/Selfoss stigahæsta félagið á mótinu.

Ólafur Guðmundsson jafnaði eitt og setti að auki sjö HSK met í aldursflokki 45 – 49 ára.  Hann gerði sér lítið fyrir og vann átta greinar á mótinu.  Hann setti met í 100 m grindahlaupi, hljóp á 16,86 sek. Óli bætti HSK met Sveins M. Gunnarssonar í 100 metra hlaupi, hljóp á 12,67 sek. Þá jafnaði hann HSK met Tómasar Jónsonar þegar hann stökk 1,60 metra í hástökki, hann bætti svo metið þegar hann stökk 1,65 metra. Hann bætti eigið met í spjótkasti, þegar hann kastaði 43,35 metra. Loks þríbætti hann HSK met Bjarka Reynissonar í langstökki, stökk fyrst 5,22, svo 5,24 og endaði með 5,55 metra.

Guðmundur Nikulásson setti tvö HSK met á mótinu, hann bætti met Þórs Vigfússonar í 100 metra hlaupi í flokki 50 – 54 ára. Hann hljóp á 14,12 sek.  Þá bæti hann met Hreins Erlendssonar í 400 metra hlaupi í sama aldursflokki, þegar hann skeiðaði hringinn á 68,31 sek.

Þorsteinn Magnússon mætti einnig sterkur til leiks og bætti HSK met Þórðar G. Sigurvinssonar í 200 metra hlaupi í flokki 35 – 39 ára.  Þorsteinn hljóp á 28,63 sek.

Fjórði keppandi HSK á mótinu var Árni Einarsson.  Hann setti ekki met að þessu sinni, en vann til fjölda verðlauna í flokki 80 – 84 ára karla.

Heildarúrslit eru á www.fri.is.

Mynd: Óli að loknu móti, hlaðinn verðlaunum.

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is