Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

25. mars 2024

Ávarp formanns HSK á héraðsþingi 2024

Ágætu félagar, enn eitt árið er að baki og enn á ný hittumst við og stillum saman strengi okkar á héraðsþingi Héraðssambandsins Skarphéðins. Af því tilefni er við hæfi að líta um öxl og rifja upp það sem hæst bar í starfi okkar á liðnu starfsári. Árið var annasamt og unnust margir glæstir sigrar. Vel hefur gengið að vinna upp þau neikvæðu áhrif sem covid hafði á starf okkar.
            Tækifærin innan HSK eru fjölmörg og spennandi tímar fram undan. Við ætlum að byggja áfram á grasrótinni og öflugu æskulýðsstarfi, sem stjórnað er af kraftmiklu fólki sem hefur verið duglegt að ná í verðlaun með sínum iðkendum og við erum afar stolt af. Innan okkar raða er stór hópur íþróttafólks sem náði eftirtektarverðum árangri bæði innanlands sem erlendis. Óska ég okkar íþróttafólki innilega til hamingju með árangurinn og hvet þau til enn frekari dáða á nýju ári. Góður árangur íþróttafólks okkar á árinu gefur fyrirheit um öflugt og spennandi íþróttaár og má lesa um hann í ársskýrslu okkar sem liggur frammi á þinginu.

 

,,Allir með”, koma svo HSK félagar

ÍSÍ, UMFÍ og ÍF (Íþróttasamband fatlaðra) hafa sett af stað samstarfsverkefni sem ber heitið ,,Allir með”. Um er að ræða þriggja ára verkefni sem ætlað er að fylgja eftir 30. gr. samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Verkefnið er styrkt af Félags- og vinnumálaráðuneytinu, Heilbrigðisráðuneytinu og Mennta- og barnamálaráðuneytinu. Framkvæmd verkefnisins er í höndum íþróttahreyfingarinnar og verður það unnið á tímabilinu 2023–2025.

     Markmið verkefnisins er:

  • Að fjölga tækifærum fatlaðra til íþróttaiðkunar í samstarfi við íþróttahreyfinguna.
  • Að öll börn og ungmenni eigi möguleika á því að taka þátt í íþróttum í sínu nærumhverfi í samræmi við óskir sínar og þarfir með viðeigandi aðlögun.
  • Að allir skulu eiga kost á að öðlast reynslu af þátttöku í íþróttum og verða sér úti um leikni til að þróast í öryggi og góðum félagsskap.

Valdimar Gunnarsson var ráðinn verkefnastjóri og hefur hann aðsetur á skrifstofu ÍF.

            ,,Allir með” er ætlað að stuðla að jöfnum tækifærum allra barna til þess að tilheyra samfélaginu og er lagt upp með að öll börn séu í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi.

Formaður HSK hitti Valdimar Gunnarsson á óformlegum fundi síðastliðið haust þar sem rætt var um verkefnið og m.a. þá döpru staðreynd að þrjú þúsund börn undir 17 ára aldri eru með fatlanir á Íslandi en aðeins um 150 þeirra eða um 4% stunda íþróttir hjá félagi samkvæmt félagaskráningarkerfi ÍSÍ. 

            Á heimasíðu verkefnisins er hægt að sækja um styrk vegna verkefna sem fela í sér inngildingu fatlaðra í íþróttastarf hjá íþróttafélögum. Þar er sótt um á ákveðnu eyðublaði og fer verkefnastjórn yfir umsóknir og ákveður styrkupphæð. Íþróttafélög sem ætla sér að fara af stað með ný verkefni sem innihalda inngildingu verða að tilheyra íþróttahreyfingunni.

             Í apríl 2023 stóð Valdimar fyrir vinnufundi um málefnið. Fulltrúar þriggja íþróttafélaga í Kópavogi sögðu frá árangursríku íþróttastarfi fyrir iðkendur með fötlun. Í máli þeirra allra kom fram að eftirspurn eftir þjálfun er mikil og að fjölga þurfi tækifærum fyrir fatlaða innan hreyfingarinnar hér á landi. Í máli þeirra kom líka fram að það sé áskorun að þjálfa þennan hóp og hana er nauðsynlegt að yfirstíga.

            Á fundinum kom fram að þátttaka í íþróttum gerir mikið fyrir börnin félagslega, sjálfstraust þeirra eykst og þau eignast vini sem við hljótum að vera sammála um að sé hverjum einstaklingi nauðsynlegt. Börn með fatlanir eru oft tekin út úr bekk í skólum og því afar mikilvægt að þau geti tilheyrt íþróttafélagi. Það er nú einu sinni þannig að ,,það er réttur hvers barns að geta valið sína íþrótt og því þurfa einstaklingar með sérþarfir að fá tækifæri til að velja sér íþróttir”, eins og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir sem var fulltrúi Íþróttafélagsins Aspar sagði, en þar þjálfar hún knattspyrnu. Gunnhildur hefur tekið að sér að aðstoða félög við að að koma á íþróttastarfi, knattspyrnu, með fötluðum. Sveitarfélagið Árborg og Ungmennafélag Selfoss hafa átt í samstarfi við Valdimar varðandi „Allir með“, og verður áhugavert að fylgjast með starfi þeirra á þessum vettvangi.

            Óásættanlegt er með öllu að mínu mati að það séu nokkur þúsund börn sem ekki hafa tækifæri á þátttöku í íþróttum, meðal annars vegna fötlunar sinnar. Keppikefli okkar allra sem störfum með börnum á að vera að stefna að því að auka vellíðan þeirra með skipulögðum hætti. Áhugavert er fyrir okkur hér á Suðurlandi að skoða og kortleggja hvernig þessum málum er fyrir komið hjá okkur. Leitum ráða og fáum leiðsögn til úrbóta hjá þeim sem hafa boðið fram aðstoð. Getum við gert betur? Stutta svarið er já. Ég er ekki í nokkrum vafa um að við getum það. Hér er verk fyrir okkur að vinna. Mætum þörfum þessara barna og ungmenna og gerum enn betur en við höfum gert fram að þessu.

 

Unglingalandsmót UMFÍ 2023

Unglingalandsmót UMFÍ var að þessu sinni haldið á Sauðárkróki og var mótið með nokkuð breyttu sniði frá undanförnum mótum. Þátttakendur voru rúmlega þúsund talsins og léku sér saman mótsdagana. Alls voru 18 keppnisgreinar í boði og fjöldi annarra greina sem gestir og gangandi gátu tekið þátt í og voru m.a. opnir flokkar í bogfimi, pílukasti og frisbígolfi.

            Á mótsetningunni komu ýmsir gestir fram, m.a. fótboltasnillingurinn Andrew Henderson, landsliðsfólk í fimleikum o.fl. Þá var boðið upp á fjölbreyttar sýningar og vinnubúðir alla helgina.

            Af sambandssvæði HSK mættu um 110 keppendur til leiks. Eins og áður fengu allir keppendur að gjöf HSK treyju merkta sambandinu og Arion banka, en þess má geta að bankinn hefur um árabil styrkt HSK við kaup á treyjunum og fyrir það þökkum við. Keppendur HSK og fjölskyldur þeirra tjölduðu á merktu svæði sambandsins og þar var samkomutjaldið reist. Eins og ávallt áður var boðið upp á kakó og kex á kvöldin. Unglinganefnd héraðssambandsins sá um allan undirbúning og framkvæmd varðandi mótið og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir þeirra góða framlag.

            Eins og við var að búast stóðu allir keppendur sig vel á mótinu og unnu til fjölda verðlauna í ýmsum greinum.

 

Landsmót UMFÍ 50+

Nokkrir einstaklingar af sambandssvæði HSK tóku þátt í mótinu sem haldið var í Stykkishólmi 23.–25. júní. Mótin eru blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að virkja fólk á besta aldri til að hafa gaman saman. HSK félagar kepptu m.a. í frjálsum, sundi, golfi og ringó. Eins og áður unnust glæstir sigrar. Næsta mót verður haldið í Vogum á Vatnsleysuströnd 23.– 25. júní 2024 og að sjálfsögðu hvetjum við okkar fólk til þátttöku.
            Gjarnan leita sveitarfélög og stjórnir íþróttafélaga á sambandssvæðinu eftir því að fá þessi mót í sveitarfélagið. Stjórn HSK hefur ávallt tekið jákvætt í að sækja um mótin, vitandi að HSK félagar eru hoknir af reynslu þegar kemur að mótahaldi. Því miður höfum við oft ekki haft erindi sem erfiði. Á þessu starfsári sóttum við um að halda mótið 2025 í samstarfi við sveitarstjórn og íþróttafélagið á Hellu en því miður var umsókn okkar eins og yfirleitt áður hafnað. Frá árinu 2011 til 2023 höfum við sent tíu umsóknir um samtals átta mót, en tvisvar sendum við inn tvær umsóknir um sama mótið. Á Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið var á Blönduósi 2015 var tilkynnt að mótið 2017 færi fram í Hveragerði og er það eina mótið 50+ mótið sem haldið hefur verið á sambandssvæði HSK. Það þýðir ekki að leggja árar í bát, við gefumst ekki upp og höldum áfram að sækja um og ég trúi ekki öðru en umsókn okkar hljóti brautargengi á endanum. Við hljótum með okkar frábæru aðstöðu vítt og breytt um sambandssvæðið og kröftugum sjálfboðaliðum að koma til álita á 10 til 15 ára fresti.

 

Fundir og þing

Formannafundur ÍSÍ var haldinn 24. nóvember í Íþróttamiðstöð Fram í Úlfarsárdal. Fundinn sóttu formaður HSK og framkvæmdastjóri.
            Fyrir fundinn var var boðið upp á kynningar um mikilvæg málefni sem tengjast íþróttum og íþróttastarfsemi. Kynning á sjálfbærum íþróttamannvirkjum var í höndum Þóreyjar Eddu Elísdóttur, fyrsta varaforseta ÍSÍ. Þórey Edda fór yfir nýjar áherslur og útskýrði hvað sjálfbær íþróttamannvirki þýða og þýðingu þeirra fyrir samfélag okkar. Næst var komið að Þórarni Alvari Þórarinssyni, starfsmanni á fræðslu- og almenningsíþróttasviði ÍSÍ og Daða Rafnssyni, doktorsnema í sálfræði. Kynntu þeir sálfærniþjálfun í íþróttum með aðferðafræði 5C. Ræddu þeir hvernig þessi þjálfun getur gert íþróttastarfið betra ef farið er í andlega þjálfun með skipulögðum og skilmerkilegri hætti. Að lokum fjölluðu Sólveig Rósa Sigurðardóttir og Halla Björk Marteinsdóttir frá Barna- og fjölskyldustofu um íþróttir og farsæld barna og kynntu hvernig samvinna og samtal á milli íþrótta, skóla, heimila og Barna og fjölskyldustofu ætti að vera með það að markmiði að þau börn sem þurfa á aðstoð og stuðningi að halda eða búa við erfiðar aðstæður, fái notið sín sem best.
            Í upphafi formannafundarins fór Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, yfir afreksmál og ræddi nokkuð nýliðna ráðstefnu þar sem fjallað var um stefnumótun í afreksíþróttum. Í ræðu sinni kom hann einnig inn á svæðisskrifstofur íþróttahreyfingarinnar og það hvernig skipulag þeirra er líklegt til að efla enn frekar íþróttastarfið á Íslandi og gera það betra og markvissara.
            Framkvæmdastjórn lagði tvö málefni fyrir fundinn; Svæðaskrifstofur ÍSÍ og UMFÍ og málefni afreksíþrótta. Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, ræddi svæðisskrifstofur og hvernig skipulag þeirra er hugsað til að bæta allt starf hreyfingarinnar. Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri ÍSÍ, fjallaði um hugmyndir varðandi afreksmál sem efst eru á baugi um þessar mundir hér á landi og nýja sýn í þeim málum. Að loknum fundi var fundargestum boðið til kvöldverðar.
            76. Íþróttaþing ÍSÍ var haldið 5. og 6. maí að Ásvöllum í Hafnarfirði. HSK mætti með fullmannað lið, sjö fulltrúa, báða dagana. Í setningarræðu sinni fór Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, yfir tillögur sem voru til umfjöllunar á þinginu. Þakkaði hann stuðning stjórnvalda við hreyfinguna á tímum covid sem gerði íþróttahreyfingunni mögulegt að hefja kröftugt íþróttastarf að loknum afléttingum á faraldrinum. Lárus kom inn á að þörf væri á auknu fjármagni í íþróttahreyfinguna og nauðsyn þess að hvetja stjórnvöld áfram í að halda áætlanir um þjóðarhöll og aðrar slíkar framkvæmdir. Lárus kom víða við í ræðu sinni varðandi þau málefni sem brenna á hreyfingunni m.a. um stöðu sjálfboðaliða, umhverfi afreksíþróttafólks, lýðheilsu, ólöglegar veðmálasíður og aukinn ferðakostnað, svo fátt eitt sé talið. Þingið ávörpuðu, Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar og Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ. Skýrslu stjórnar flutti Andri Stefánsson og Gunnar Bragason, gjaldkeri ÍSÍ, kynnti reikninga. Loks var kynning á frambjóðendum til framkvæmdastjórnar ÍSÍ og áttum við HSK félagar þar verðugan fulltrúa, Olgu Bjarnadóttur, sem var endurkjörin og hlaut glæsilega kosningu.
            Fyrir þinginu lágu 19 tillögur, sem ræddar voru í nefndum þingsins. Sú tillaga sem mesta umfjöllun hlaut og var samþykkt varðaði skipulag íþróttahéraða og einnig tillaga um skiptingu tekna frá Íslenskri getspá. Má segja að tillagan varðandi stofnun svæðaskrifstofa íþróttahéraða um allt land í samstarfi við UMFÍ og stjórnvöld sé tímamótatillaga. Gert er ráð fyrir að 15% af lottógreiðslum til ÍSÍ fari til reksturs skrifstofanna og 85% til íþróttahéraða eftir íbúafjölda 18 ára og yngri. Samkvæmt tillögunni á að koma á fót átta svæðaskrifstofum með sextán stöðugildum sem eiga að þjónusta íþróttahéruð með samræmdum hætti. Er þetta sambærileg tillaga og samþykkt var á sambandsþingi UMFÍ sem haldið var í október. Ríkið hefur nú gert samning við íþróttahreyfinguna um að leggja fram sambærilegan fjárstuðning til skrifstofanna svo tryggja megi reksturinn. Einnig má geta þess að gerðar voru breytingar á lögum ÍSÍ og var m.a. samþykkt að fækka þingfulltrúum og mun að óbreyttu fulltrúum HSK fækka úr sjö í fimm.

 

Vorfundur UMFÍ og Sambandsþing

Vorfundur UMFÍ 2023 var haldinn í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal 13. maí. Fundinn sóttu formaður HSK og framkvæmdastjóri. Hefð hefur skapast fyrir því að halda vorfundinn árlega þó ekki sé kveðið á í lögum UMFÍ eða reglugerðum að þessa fundi skuli halda. Fundina sækja forsvarsfólk sambandsaðila ásamt stjórn og starfsfólki UMFÍ.
            Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, setti fundinn og flutti ávarp. Starfsmenn UMFÍ héldu stuttar kynningar um ýmis málefni. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, fór yfir það helsta í starfsemi UMFÍ og kynnti nýtt stjórnskipulag þjónustumiðstöðvarinnar. Ragnheiður Sigurðardóttir, verkefnastjóri UMFÍ, fjallaði um þá þjónustu sem sambandsaðilum UMFÍ og aðildarfélögum þeirra stendur til boða hjá UMFÍ. Ómar Bragi Stefánsson, framkvæmdastjóri Landsmóta UMFÍ, kynnti viðburði sumarsins 2023 og hvatti fundargesti til þátttöku í þeim. Hermann Sigurðsson og Ásthildur Elva Bernharðsdóttir frá Háskólanum á Bifröst fjölluðu um áfallastjórnun og viðbrögð við þeim. Eftir matarhlé var þátttakendum skipt upp í umræðuhópa og ræddu hóparnir um starfsstöðvar íþróttahreyfingarinnar á landsvísu. Gunnar Þór Gestsson, formaður nefndar um íþróttahéruð og varaformaður UMFÍ, kynnti tillögur nefndar um íþróttahéruð. Að fundi loknum bauðst fundarfólki að leika sér í pílu og höfðu allir gaman saman.
            Sambandsþing Ungmennafélags Íslands var haldið á Hótel Geysi í Haukadal 20.–22. október. Þingið var vel sótt en um 180 þingfulltrúar og gestir voru mættir við þingsetningu á föstudagskvöldinu. Þinghaldið gekk vel undir styrkri stjórn þingforsetanna, Þóris Haraldssonar og Olgu Bjarnadóttur.
            Stærsta málið á þinginu var tillaga sem fól í sér samþykkt á lottóreglum og úthlutunum samhliða stofnun svæðaskrifstofa íþróttahéraða víða um land í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og stjórnvöld og áður hefur verið fjallað um.
            Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, var gestur við setningu þingsins og flutti þar ávarp. Hann sagði að búið væri að tryggja einn starfsmann á hvert starfssvæði, sem tillagan kveður á um, og fjármagn til að viðkomandi geti sinnt vinnu sinni.

 

Svæðaskrifstofur ÍSÍ og UMFÍ - 400 milljónir til eflingar íþróttastarfs á landsvísu

Eins og fyrr sagði var á þingum ÍSÍ og UMFÍ samþykkt tillaga um stofnun átta svæðisskrifstofa ÍSÍ og UMFÍ á landsvísu með aðkomu Mennta- og barnamálaráðuneytis, sem og fjármögnun verkefnisins. Þetta mál ber hæst á vettvangi íþrótta í dag. Tillagan felur í sér eina stærstu breytingu varðandi fyrirkomulag á rekstri hreyfingarinnar. Vonir eru bundnar við að þetta verkefni muni hafa mjög mikil og jákvæð áhrif á landsvísu.

Eitt það jákvæðasta að mínu mati er að með þessu fyrirkomulagi er stefnt að því að ná betur til barna sem tilheyra jaðarhópum, barna sem glíma við fötlun, barna af erlendu bergi brotnu, barna sem glíma með menningar- og tungumálaörðugleika og barna tekjulægri foreldra. Um er að ræða fjölgun á starfsfólki sem á að sinna lögbundnum verkefnum héraðssambanda og íþróttabandalaga og styrkja og efla allt starf í héraði sem og aðstoða ríkið við þau verkefni sem samtvinnast starfsemi íþróttahreyfingarinnar.

            Stofnun svæðisskrifstofanna fellur vel að áherslum og stefnu Mennta- og barnamálaráðuneytisins í íþróttamálum til ársins 2030. Markmiðið er m.a. að ÍSÍ og UMFÍ skilgreini hlutverk íþróttahéraða og meti starfsemi þeirra með það að leiðarljósi að efla hana ennfrekar. Auk þessa er horft til samlegðaráhrifa við verkefni ríkis og sveitarfélaga m.a. samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, skólaþjónustu og æskulýðsstarfs.

            ÍSÍ og UMFÍ munu auk þessa koma á Hvatasjóði, þar sem íþróttahéruð/félög/deildir geta sótt um stuðning við ýmiss verkefni sem miða t.d. að útbreiðslu íþrótta og aukinni þátttöku barna og ungmenna. Í verkefnið veitir Mennta- og barnamálaráðuneytið 400 milljónum króna næstu tvö ár. ÍSÍ og UMFÍ setja 130 milljónir króna af árlegu framlagi ráðuneytisins til svæðisskrifstofanna og 70 milljónir króna til Hvatasjóðs. Stöðugildin tvö á hverri svæðisskrifstofu verða fjármögnuð af ráðuneyti og íþróttahreyfingunni.

            Fram undan eru spennandi tímar. Með þessari breytingu eru vonir bundnar við að stoðir undir íþróttastarfið verði styrkari og allt starf sjálfboðaliðanna sem hafa fram að þessu borið uppi starfið í hreyfingunni verði léttara. Nú reynir á íþróttahreyfinguna sem aldrei fyrr að fara samstíga inn í verkefnið. Fulltrúi HSK, USVS og ÍBV í starfshópi verkefnisins er Helgi S. Haraldsson, varaformaður HSK.

 

Ýmiss verkefni

Fulltrúar HSK sóttu hefðbundna fundi sem haldnir voru á vegum UMFÍ og ÍSÍ á liðnu starfsári, sem og aðra viðburði á þeirra vegum.
            Í apríl heimsótti stjórn HSK höfuðstöðvar ÍSÍ og UMFÍ í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Andri Stefánsson, framkvæmdastjóri ÍSÍ, tók á móti hópnum og sýndi skrifstofu ÍSÍ og húsakynni. Við þetta sama tækifæri hitti stjórnin Lárus Blöndal, forseta ÍSÍ, og Gunnar Bragason, gjaldkera ÍSÍ. Stjórnin hélt síðan hefðbundinn stjórnarfund í glæsilegum og nýuppgerðum fundarsal ÍSÍ.
            Að loknum fundi tóku Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, Jóhann Steinar Ingimundarson, formaður UMFÍ, og Ragnheiður Högnadóttir, formaður framkvæmdastjórnar UMFÍ, á móti hópnum og snæddum við saman kvöldverð og áttum gott og gagnlegt spjall.
            Formaður og framkvæmdastjóri þáðu boð ÍSÍ í janúar 2024 þegar kjöri á íþróttamanni ársins var lýst. Við sama tækifæri var tilkynnt hver hlaut sæmdarheitið íþróttaeldhugi ársins en valið er í höndum valnefndar ÍSÍ. Stjórn HSK er gríðarlega stolt af því að Ólafur Elí Magnússon var einn þeirra þriggja sem hlaut flestar tilnefningar úr röðum sjálfboðaliða. Hann var valinn úr röðum sjálfboðaliða sem hafa í gegnum árin nýtt eigin hæfileika, frítíma og sérþekkingu til að efla íþróttastarfið í sínu nærumhverfi. Við erum afar stolt af Ólafi Elí fyrir alla hans óeigingjörnu vinnu sem hann hefur unnið fyrir félagið sitt Dímon og HSK, til hamingju Ólafur Elí.

 

Lokaorð

Afar brýnt er fyrir félagasamtök að geta þróast og vaxið í takt við tíðarandann og því mikið í húfi fyrir íþróttahreyfinguna hvernig til tekst með þá nýbreytni sem felst í að koma á fót svæðaskrifstofum. Mikil vinna fer fram þessa dagana af hálfu íþróttahreyfingarinnar og ríkisvaldsins við að koma þessum málum í höfn. Sú vinna sem fram undan er í íþróttahreyfingunni tekur mið af breyttum tímum og eru bundnar vonir við að íþróttahreyfingin í heild sinni nái enn frekari og betri árangri og framþróun á komandi árum. Til mikils er að vinna og þá sérstaklega að létta álagi og ábyrgð af sjálfboðaliðunum sem fram að þessu hafa með þrotlausri vinnu haldið starfinu gangandi, fá aukið fjármagn, aukið samstarf og samstarfsmöguleika inn í hreyfinguna. Það er nefnilega þannig í pottinn búið að til þess að njóta velgengni þarf að hafa skýrt hlutverk og velgengni verður ekki til af sjálfu sér. Því þurfum við öll að leggjast á eitt um að vel takist til í þeirri vinnu sem fram undan er.

            Við þurfum að taka höndum saman og halda áfram að virkja kraftinn sem býr í HSK. Tökumst áfram á við áskoranir sem við mætum, nýtum áfram tækifærin sem okkur bjóðast og stuðlum að því að allir geti tekið þátt í starfinu á eigin forsendum með gleðina í fyrirrúmi. Leggjum áherslu á samvinnu og bætt skipulag. Göngum í takt, íþróttahreyfingin og stjórnvöld, vinnum saman og náum árangri, öllum til hagsbóta.

            Bestu þakkir færi ég Íslenskri Getspá og Getraunum fyrir öflugan styrk. Afar brýnt er að standa vörð um þessi fyrirtæki sem eiga í mikilli samkeppni við aðila sem greiða allan sinn hagnað til erlenda aðila. Höfum í huga að þær tekjur sem við fáum af lottói og getraunum eru afar mikilvægar fyrir okkur og skipta sköpum.

            Öllum þeim hundruðum einstaklinga og aðila sem unnið hafa með okkur eru færðar þakkir fyrir gott starf. Þeim sem hverfa úr nefndum og ráðum eru þökkuð vel unnin störf og óskað góðs gengis á nýjum vettvangi.

            Að lokum vil ég þakka stjórn og framkvæmdastjóra, sem og aðildarfélögum HSK, fyrir gott samstarf með ósk um að nýtt starfsár færi okkur öllum gæfu og gleði.

 

Guðríður Aadnegard, formaður HSK

 

Viðburðir

  • 15.05.2025 Héraðsmót HSK í sundi
  • 16.05.2025 Íþróttaþing ÍSÍ
  • 19.05.2025 Morgunfundur um stuðning sveitarfélaga við íþ..
  • 20.05.2025 Umsóknir í Hvatasjóð
  • 09.06.2025 Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 15.06.2025 Bláskógaskokk HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

11.04

Blak, héraðsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, héraðsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

02.01

Bridds, HSK tvímenningur

15.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Héraðsleikar og aldursflokkamó..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.05

Sund, héraðsmót

15.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is