Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráđ
  • |
  • Ađildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerđir
  • |
  • Fundargerđir
  • |
  • Verkefnasjóđur
  • |
  • Um HSK
Hérađssambandiđ Skarphéđinn

 

19. febrúar 2020

Međ bros á vör

 

Unglingalandsmót UMFÍ verður haldið á Selfossi um verslunarmannahelgina í sumar, dagana 30. júlí – 2. ágúst. HSK sér um framkvæmd mótsins í samstarfi við UMFÍ og Sveitarfélagið Árborg.

Unglingalandsmót UMFÍ er vímulaus íþrótta- og fjölskylduhátíð sem allir 11-18 ára geta keppt á en einnig eru verðug verkefni fyrir bæði yngri börn sem og fullorðna.  Keppnisgreinarnar eru 24 talsins að þessu sinni. Mótið er fjölskyldu- og íþróttahátíð því einnig er boðið upp á tónleika á kvöldin og metnaðarfulla dagskrá fyrir alla mótsgesti.

Við búumst við miklum fjölda keppenda og gesta um helgina, margir munu nýta sér tjaldsvæðin við Suðurhóla og Engjaveg, aðrir í nálægum byggðum.  Við hvetjum Selfyssinga og aðra sunnlendinga til að taka þátt í mótinu, keppnisgreinum, skemmtun og afþreyingu, auk þess sem þörf er á fjölda sjálfboðaliða við undirbúning og framkvæmd mótsins.

Við heimamenn, einstaklingar og fyrirtæki, þurfum líka að búa okkur undir að taka vel á móti gestum okkar, veita þjónustu, aðstoð og vera jákvæð; með bros á vör!

Undirbúningur er kominn í fullan gang, fréttir og dagskrá mun birtast inn á www.ulm.is, skráningarfrestur í keppnisgreinar verður fram að helginni fyrir mót en ekki mun þurfa að skrá þátttöku fyrirfram í afþreyingu og marga viðburði mótsins.  Til að geta framkvæmt mótið þarf fjármagn og munu fulltrúar okkar á næstunni leita til fyrirtækja um samstarf og stuðning við mótshaldið en þeir sem hafa áhuga á samstarfi, hafa hugmyndir eða tillögur eiga endilega að hafa samband við HSK, t.d. með tölvupósti á hsk@hsk.is eða með því að hringja í síma 482 1189.

Allir eru velkomnir, - allar hugmyndir eru velkomnar, margar hendur þarf til aðstoðar.  Verum jákvæð, tökum þátt, - með bros á vör.

F.h. framkvæmdanefndar ULM
Þórir Haraldsson, formaður.

 

Viđburđir

  • 17.05.2026 Ársţing Judósambands Íslands
  • 17.05.2026 Málţing um međgöngu og endurkomu eftir fćđing..
  • 21.05.2026 Vormót HSK í frjálsum íţróttum
  • 04.06.2026 Hérađsleikar HSK í frjálsum íţróttum
  • 06.06.2026 Ársţing Glímusambands Íslands
  • 14.06.2026 Bláskógaskokk HSK
  • Fleiri viđburđir
  • HSK met
  • Sögulegur fróđleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit hérađsmóta

24.04

Blak, hérađsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borđtennis, hérađsmót

21.03

Frjálsar, hérađsmót innanhúss

21.03

Frjálsar, hérađsleikar innanhú...

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Hérađsmótiđ í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

04.06

Frjálsar, hérađsleikar

14.06

Bláskógaskokk HSK

15.06

Frjálsar, aldursflokkamót

logo

Hérađssambandiđ Skarphéđinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is