Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráđ
  • |
  • Ađildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerđir
  • |
  • Fundargerđir
  • |
  • Verkefnasjóđur
  • |
  • Um HSK
Hérađssambandiđ Skarphéđinn

 

22. júní 2017

Margt í bođi á Landsmóti UMFÍ 50+ í Hveragerđi

Landsmót UMFÍ 50+ er eitt af stærri verkefni hreyfingarinnar og nú er komið að okkur HSK-félögum að halda mótið í samstarfi við Hveragerðisbæ.

Landsmótsnefndin hefur undirbúið mótið eins vel og kostur er og unnið gott verk. Ásamt bæjaryfirvöldum höldum við glæsilegt Landsmót UMFÍ 50+ um komandi helgi.

Mótið hefst í Hamarshöllinni föstudaginn 23. júní kl. 10 með keppni í boccia. Keppni í ringó hefst kl. 16. í íþróttahúsinu. Mótssetning verður svo í íþróttahúsinu um kvöldið kl. 20 þar sem m.a. verður keppt í línudansi. Bjóðum við alla Hvergerðinga og Sunnlendinga hjartanlega velkomna á setningarathöfnina. Á laugardeginum verður keppt í golfi, boccia, utanvegahlaupi, skák, bridds, strandblaki, sundi og frjálsum íþróttum, að ógleymdum pönnukökubakstri og jurtagreiningu. Á sunnudegi verður keppt í þríþraut, badminton, pútti, þrekþraut og fuglagreiningu. Lokagrein mótsins er stígvélakast í Lystigarðinum. Áformað er að slíta mótinu að því loknu um kl. 14.

Á þessu Landsmóti eins og öðrum er það ekki einungis íþróttakeppni sem allt byggist á. Að sjálfsögðu skipar keppnin stærstan sess en það er svo fjölmargt annað sem gerir Landsmótin að því sem þau eru. Skemmtileg samvera í góðum og léttum félagsskap er ekki lítils virði.

Samhliða keppni verður margt í boði fyrir gesti og gangandi. Á föstudagskvöldinu eftir mótssetningu verður opið hús hjá Félagi eldri borgara í Hveragerði og á Skyrgerðinni. Eftir átök föstudagsins verður á laugardags morgni boðið upp á jóga fyrir alla í Lystigarðinum kl. 8. Gönguferð með leiðsögn verður í boði á laugardegi kl. 13 sem og opnir tímar í línudansi í íþróttahúsinu kl. 13–17. Um kvöldið verður sameiginlegur kvöldverður í Hótel Örk þar sem verður matur, skemmtun og dans.

Við hefjum sunnudaginn síðan með sundleikfimi kl. 8:30. Utanvegahlaup, opið öllum 18 ára og eldri, fer fram á laugardeginum kl. 9. Þannig verður margt umleikis yfir helgina sjálfa sem gefur bæði keppendum og gestum færi á að njóta margra spennandi en ólíkra viðburða á skömmum tíma.

Eins og sjá má á www.umfi.is og  www.hveragerdi.is er dagskrá mótsins afar fjölbreytt og allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, sama á hvaða aldri þeir eru. Sagt hefur verið að allir verða ungir á því að mæta á Landsmót og ég er viss um að svo verður um þá sem mæta í Hveragerði um helgina.

Við hvetjum heimamenn og gesti til þess að fjölmenna og fylgjast með skemmtilegri keppni í fallegu umhverfi sem og að mæta á þá viðburði sem boðið er upp á landsmótshelgina og upplifa einstaka stemmningu Landsmótanna.

Nánari upplýsingar um mótið má lesa á heimasíðu UMFÍ, www.umfi.is og á www.hveragerdi.is.

Guðríður Aadnegard, formaður HSK.

Viđburđir

  • 17.05.2026 Ársţing Judósambands Íslands
  • 17.05.2026 Málţing um međgöngu og endurkomu eftir fćđing..
  • 21.05.2026 Vormót HSK í frjálsum íţróttum
  • 04.06.2026 Hérađsleikar HSK í frjálsum íţróttum
  • 06.06.2026 Ársţing Glímusambands Íslands
  • 14.06.2026 Bláskógaskokk HSK
  • Fleiri viđburđir
  • HSK met
  • Sögulegur fróđleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit hérađsmóta

24.04

Blak, hérađsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borđtennis, hérađsmót

21.03

Frjálsar, hérađsmót innanhúss

21.03

Frjálsar, hérađsleikar innanhú...

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Hérađsmótiđ í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

04.06

Frjálsar, hérađsleikar

14.06

Bláskógaskokk HSK

15.06

Frjálsar, aldursflokkamót

logo

Hérađssambandiđ Skarphéđinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is