Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

6. júní 2016

Landsmót UMFÍ 50 plús á Ísafirði

Nú er komið að næsta Landsmóti UMFÍ 50 plús. Það verður haldið á Ísafirði 10. til 12.  júní n.k. Þetta landsmót eldri borgara er búið að festa sig í sessi, þetta er sjötta landsmótið. Þau eru haldin árlega og hafa mótin farið fram með miklum sóma, keppendur verið nokkur hundruð.

Á mótinu í fyrra mættu allt of fáir af félagssvæði HSK og ég skora nú á sem flesta að taka fram íþróttagallann og skóna og mæta og helst enn fleiri en í fyrra.   Einstaklingar og hópar sjá sjálfir um að skrá sig til keppninnar á vefnum  skraning.umfi.is  og eins er hægt að skrá sig með hálftíma fyrirvara þegar komið er vestur á Ísafjörð.    Þáttökugjald er 4500 krónur, burt séð frá í hversu mörgum greinum er keppt.  Héraðssambandið okkar leggur til HSK keppnisbol, hann er gulur með HSK stöfunum. Keppendur eru hvattir til að nota hann svo öllum sé ljóst að þar fari keppendur frá HSK. Bolinn er hægt að fá á skrifstofu HSK í Selinu á Selfossi og líka verður hann til vestur á Ísafirði. 

Líklega  mættu um 30  til 40 keppendur frá HSK á Blönduósi í fyrra, þar mættu jafnvel frá okkur til keppni konur og karlar sem höfðu ekki fyrr gert sér grein fyrir getu sinni og komu heim með verðlaun, jafnvel gullverðlaun. En samt mættu miklu fleiri mæta. Í fyrra vorum við aðeins tvö héðan sem kepptum í sundi, ég og Helga Guðmundsdóttir frá Hurðarbaki, bæði í aldursflokki 80 til 84. Líklega vorum við aldursforsetar mótsins, allavega í sundinu.  Hvar er allt okkar góða sundfólk frá liðnum árum, hvers vegna kemur það ekki.  Og fjöldinn allur sem gert hefur garðinn frægan í öðrum íþróttagreinum.   Keppt verður í 18 íþróttagreinum en á áðurnefndum vef  UMFÍ geta menn fengið allar upplýsingar um þær.  Í einstaklingsgreinum er keppt í aldursflokkum, 50 til 54 ára, 55 til 59 ára, 60 til 64 ára og svo framvegis. Þannig etja menn kappi við jafningja sína í aldri. En þótt gaman sé að vinna til verðlauna er þetta mót fyrst og fremst til að hafa gaman af, njóta lífsins og finna hvað í manni býr og tendra ungmennafélagsandann.  Taka fjölskylduna með sér og sýna börnum og barnabörnum hvað enn býr í pabba og mömmu eða afa og ömmu.   Mætum sem flest á Landsmót UMFÍ 50 plúss á Ísafirði.

 

Viðburðir

  • 15.05.2025 Héraðsmót HSK í sundi
  • 16.05.2025 Íþróttaþing ÍSÍ
  • 19.05.2025 Morgunfundur um stuðning sveitarfélaga við íþ..
  • 20.05.2025 Umsóknir í Hvatasjóð
  • 09.06.2025 Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 15.06.2025 Bláskógaskokk HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

11.04

Blak, héraðsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, héraðsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

02.01

Bridds, HSK tvímenningur

15.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Héraðsleikar og aldursflokkamó..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.05

Sund, héraðsmót

15.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is