Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráđ
  • |
  • Ađildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerđir
  • |
  • Fundargerđir
  • |
  • Verkefnasjóđur
  • |
  • Um HSK
Hérađssambandiđ Skarphéđinn

 

20. september 2014

Hver er ţín uppáhalds hreyfing? -hver er ţín hreyfing?

Það er talið að um 600.000 þúsund dauðsfalla í Evrópu megi rekja beint til hreyfingarleysis. Flestir sem hreyfa sig ekki neitt segja ástæðuna vera peningaskort. Það er margt  hægt að gera til að bæta heilsu sína sem hvorki kostar krónu né mikla fyrirhöfn. Mestu máli skiptir að hafa gaman af því sem maður tekur sér fyrir hendur, því það eykur líkurnar á því að maður haldi áfram. 

Það eru skilaboðin í samfélaginu og boðskapurinn sem skiptir máli. Frá því að við vöknum á morgnana og förum að  sofa á kvöldin þá erum við að hreyfa okkur en við þurfum að fá hjartað til að pumpa duglega að minnsta kosti í 30 mínútur á dag til að endurnýja frumurnar okkar og þannig bæta heilsuna. Það þurfa ekki allir að stunda fjallgöngur, æfa íþróttir, hlaupa maraþon, vera í skokkhóp eða taka þátt í þrekmótum. Það ættu allir að finna sína hreyfingu – eitthvað sem hentar hverjum og einum og hafa gaman af því. Alltof margir velja að verma sófann í stað þess að uppfylla ráðlagðan dagsskammt af hreyfingu á dag. 

Hvernig fáum við fleiri til að stunda hreyfingu sér til heilsubótar? Allsstaðar í heiminum er fólk að reyna að finna töfralausnina og Hreyfivikan MOVE WEEK sem fer fram um gjörvalla Evrópu dagana 29. september – 5. október 2014 líka – en bara aðeins öðruvísi!

Hreyfivikan MOVE WEEK er hluti af  “The NowWeMove 2012 - 2020” herferð International Sport and Culture Association (ISCA) sem hefur það að markmiði að kynna kosti þess að taka virkan þátt í hreyfingu og íþróttum til heilsubótar. Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) er aðili að ISCA og tekur þátt í verkefnum samtakanna.

Á sambandssvæði HSK munu nokkur sveitarfélög standa fyrir dagskrá í Hreyfivikunnu MOVE WEEK en Árborg, Hveragerði og Þorlákshöfn verða með glæsilega dagskrá. Síðan er aldrei að vita hvað einstaklingsframtakið kemur til með skila sér því það geta allir sem vilja tekið þátt. Ef þú hefur áhuga á að gerast boðberi hreyfingar á Íslandi þá getur þú skráð þig inni á heimasíðu herferðarinnar www.iceland.moveweek.eu, staðið fyrir viðburð og hvatt fólk til að taka þátt með þér. Saman getum við öll gert frábæra hluti og spornað gegn hreyfingarleysi. 

 

Sabína Steinunn Halldórsdóttir, landsfulltrúi UMFÍ

Viđburđir

  • 15.05.2025 Hérađsmót HSK í sundi
  • 16.05.2025 Íţróttaţing ÍSÍ
  • 19.05.2025 Morgunfundur um stuđning sveitarfélaga viđ íţ..
  • 20.05.2025 Umsóknir í Hvatasjóđ
  • 09.06.2025 Sumarfjarnám ÍSÍ í ţjálfaramenntun
  • 15.06.2025 Bláskógaskokk HSK
  • Fleiri viđburđir
  • HSK met
  • Sögulegur fróđleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit hérađsmóta

11.04

Blak, hérađsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, hérađsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

02.01

Bridds, HSK tvímenningur

15.12

Taekwondo, hérađsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Hérađsmótiđ í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Hérađsleikar og aldursflokkamó..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.05

Sund, hérađsmót

15.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Hérađssambandiđ Skarphéđinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is