Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Fundur um stefnumótun íþróttahreyfingar

01.09.2026 - 01.09.2026

Næsti fasi í stefnumótunarvinnu íþróttahreyfingarinnar er að hefjast. Þriðjudaginn 1. september næstkomandi klukkan 16:00 til 19:00 er netfundur með fulltrúum íþróttahéraða og sérsambanda. Fulltrúum íþróttafélaga er einnig velkomið að taka þátt. Fundurinn nú er framhald á þeim stefnumótunarfundum sem haldnir voru víða um land í nánu samstarfi við íþróttahreyfinguna á vordögum um þau þrjú meginsvið sem unnið hefur verið með til þessa: Grasrótarstarf, afreksstarf og samfélagslegt hlutverk íþróttahreyfingarinnar með áherslu á forvarnir og lýðheilsu. Þar voru góðar umræður um leiðina fram undan og áherslur til framtíðar. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir, ráðgjafi hjá Expectus, mun sem fyrr stýra fundinum. Mikilvægt er að skrá þátttöku á fundinum. Smelltu hér og skráðu þig á fundinn Næstu skref Tillögur eftir stefnumótunarfundi ársins verða til umræðu á sambandsráðsfundi UMFÍ í október og á formannafundi ÍSÍ í nóvember. Stefnumótunarvinnan er unnin á vegum stýrihóps sem starfar í umboði stjórna UMFÍ og ÍSÍ. Markmiðið er að niðurstöður hennar verði formlega kynntar á íþróttaþingi árið 2027.


Viðburðir

  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • 10.10.2026 Samtal, viðburður að frumkvæði forseta Ísland..
  • 13.10.2026 Styrkir í þágu farsældar barna
  • 28.10.2026 Skráningar á Héraðsmót karla og kvenna í blak..
  • 30.10.2026 Landsþing Landssambands hestamanna
  • 01.11.2026 Syndum - Landsátak í sundi
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

04.11

Blak, héraðsmót kvenna

05.11

Blak, héraðsmót karla

07.11

Bridds, sveitakeppni HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is