Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Samtal við ungt fólk á Suðurlandi

24.04.2026 - 24.04.2026

Svæðisbundinn samráðsfundur verður haldinn á Suðurlandi þann 24. apríl 2026 kl. 13:00- 15:00 í sal Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Markmið fundarins er að búa til opinn og skipulagðan vettvang fyrir ungt fólk á aldrinum 15-25 ára og veita þeim sem sækja fundinn tækifæri til að koma sjónarmiðum sínum, reynslu og hugmyndum á framfæri við ráðafólk í íþrótta- og æskulýðsstarfi ásamt fulltrúum sveitarfélaga. Fundurinn er hluti af landsverkefni UMFÍ, ÍSÍ, Svæðisstöðva íþróttahéraðanna og Ungmennaráði UMFÍ og miðar að því að efla lýðræðislega þátttöku ungs fólks en sporna líka gegn brottfalli úr skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi. Fyrirkomulag, tími og staðsetning Fundurinn er leiddur af Ólafi Stefánssyni fyrrum landsliðsfyrirliða í handknattleik, heimspeking og meistaranema í íþróttasálfræði, fulltrúum Ungmennaráðs UMFÍ, svæðisfulltrúum, UMFÍ og ÍSÍ. Um er að ræða samráðsfund þar sem áhersla er lögð á hlustun, samtal og gagnkvæman skilning. Meðfylgjandi er auglýsing og kóði fyrir skráningu er https://forms.gle/C8cgYYRuYKtzTVuo7 Einnig er hægt að senda staðfestingu á þátttöku á netfangið hansina@isi.is fyrir 20. apríl 2026.


Viðburðir

  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • 10.10.2026 Samtal, viðburður að frumkvæði forseta Ísland..
  • 13.10.2026 Styrkir í þágu farsældar barna
  • 28.10.2026 Skráningar á Héraðsmót karla og kvenna í blak..
  • 30.10.2026 Landsþing Landssambands hestamanna
  • 01.11.2026 Syndum - Landsátak í sundi
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

04.11

Blak, héraðsmót kvenna

05.11

Blak, héraðsmót karla

07.11

Bridds, sveitakeppni HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is