Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Skautafjör á Laugarvatni

17.01.2026 - 17.01.2026

Skautafjör verður haldið á Laugarvatni laugardaginn 17. janúar frá kl. 12:00 til 14:00 og er hluti af vetraríþróttavikunni sem er framundan. Hægt verður að prófa ýmislegt á ísnum t.d. skauta, krullu, íshokkí og bora dorgholu í ísinn. Skautar verða til útláns í stærðunum 37-45 en allir sem eiga skauta er hvattir til að taka þá með, kannski geta einhverjir aðrir fengið að prufa þá. Til að minnka slysahættu eru allir hvattir til að vera með hjálm á höfði, stólar verða í boði til að styðja sig við fyrir þá sem þess þurfa. Það verður kveikt upp í varðeldi þannig að það er um að gera að taka með pinnabrauðsdeig (uppskrift: https://shorturl.at/I3pKL ) eða eitthvað annað að njóta við eldinn. Boðið verður upp á heitan drykk við varðeldinn en gestir er hvattir til að taka með auka kakó / kaffi eða álíka. Eftir að hafa verið á ísnum þá er frítt í sundlaugina og heita pottinn fyrir þá sem taka þátt í viðburðinum. Eftir langt frostatímabil þá er ísinn á vatninu um 15 sm þykkur en þó þarf alltaf að fara varlega og þá sérstaklega við inn- og útósa (þar sem straumur er inn í eða út úr vatninu). Í byrjum viðburðarins verður kynnt hvernig ísþykkt sé metin og hvernig skuli gæta varúðar á ísilögðum vötnum. Athygli er vakin á því að börn eru á ábyrgð foreldra sinna. Staðsetningin er hér: https://maps.app.goo.gl/wDnfWQTdnd9wNNjeA Munið að klæða ykkur vel og miðað við aðstæður. Komum og höfum gaman saman. Verið hjartanlega velkomin! Viðburðurinn er samstarfsverkefni heilsueflandi Bláskógabyggðar, Heilsueflandi samfélags í Grímsnes- og Grafningshrepp, svæðisskrifstofu íþróttahéraða og HSK og er hluti af íþróttaviku Evrópu.


Viðburðir

  • 11.02.2026 Aðalfundur Umf. Framtíðarinnar
  • 19.02.2026 Formannafundur HSK
  • 26.02.2026 Aðalfundur Umf. Þjótanda
  • 28.02.2026 Ársþing Knattspyrnusambands Íslands
  • 15.03.2026 Umsóknir í Hvatasjóð íþróttahreyfingarinnar
  • 26.03.2026 104. héraðsþing HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

08.12

Sveitakeppni HSK í skák

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.02

Blak. héraðsmót kvenna

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is