Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Syndum, landsátak í sundi

01.11.2025 - 01.11.2025

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. til 30. nóvember 2025. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Á síðasta ári syntu þátttakendur samtals 31.271km, eða um 24 hringi í kringum landið. Það væri gaman að sjá sem flestar sundlaugar taka þátt. Í fyrra voru skólar og sundfélög einnig sérstaklega hvött til þátttöku og svo verður einnig í ár. Syndum, Landsátak í sundi, er framhald af Íþróttaviku Evrópu, sem varð 10 ára í ár, og er verkefni styrkt af European Commission. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Sund er fyrir alla, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi og er tilvalin þjálfunaraðferð sem styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans en er einnig frábær og skemmtileg tómstundaiðja sem öll fjölskyldan getur stundað saman. Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá synta metra. Þeir sem eiga notendanafn úr Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn. Skráningarblaðið er hugsað fyrir þá sem geta ekki notað tölvu til skráningar á metrum, en auðveldast er að starfsfólk sundlauga skrái samtöluna inn í kerfið t.d vikulega. Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband í gegnum syndum@isi.is eða linda@isi.is.


Viðburðir

  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • 10.10.2026 Samtal, viðburður að frumkvæði forseta Ísland..
  • 13.10.2026 Styrkir í þágu farsældar barna
  • 28.10.2026 Skráningar á Héraðsmót karla og kvenna í blak..
  • 30.10.2026 Landsþing Landssambands hestamanna
  • 01.11.2026 Syndum - Landsátak í sundi
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

04.11

Blak, héraðsmót kvenna

05.11

Blak, héraðsmót karla

07.11

Bridds, sveitakeppni HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is