Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Alþjóðlegur dagur göngunnar 5. október

05.10.2025 - 05.10.2025

Alþjóðlegur dagur göngunnar, World Walking Day, er þann 5. október og er markmið dagsins að hvetja fólk um heim allan til aukinnar hreyfingar. Á sunnudag fer rafrænt boðhlaupskefli á milli allra 24 tímabelta heimsins til að undirstrika þann sameiningarmátt sem íþróttir og hreyfing geta haft á heimsvísu. Afreksíþróttakonan og læknaneminn Eygló Fanndal Sturludóttir mun taka við keflinu hér á Íslandi og vekja athygli á þeim krafti og lækningu sem felst í daglegri hreyfingu og hvernig ganga stuðlar að heilbrigðri og betri andlegri líðan áður en Eygló afhendir keflið áfram. Öllum er velkomið að taka þátt í átakinu, taka við keflinu og rétta það áfram fyrir ákveðinn málstað. Það er TAFISA (The Association For International Sport for All) sem skipuleggur verkefnið ár hvert en milljónir manns í yfir 170 löndum hafa tekið þátt síðan verkefnið fór fyrst af stað árið 1991. Þema World Walking Day í ár er að ganga fyrir friði, aðgengi að íþróttum og menntun, kynjajafnrétti, heilsu og samkennd. HSK hvetur sunnlendinga til að taka þátt í World Walking Day og merkja ÍSÍ á samfélagsmiðlum, @isiiceland, og nota myllumerkið #WorldWalkingDay


Viðburðir

  • 17.01.2026 Skautafjör á Laugarvatni
  • 19.01.2026 Fundur með félögum í uppsveitum Árnessýslu
  • 20.01.2026 Skil á skýrslu um starf aðildarfélaga HSK
  • 21.01.2026 Ráðstefnan Meira eða minna afreks?
  • 09.02.2026 Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 19.02.2026 Formannafundur HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

08.12

Sveitakeppni HSK í skák

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

16.11

Unglimgamót HSK í sundi

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is