Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Ráðstefnan Meira eða minna afreks?

22.01.2025 - 22.01.2025

Miðvikudaginn 22. janúar fer fram ráðstefna í Háskólanum í Reykjavík, í tengslum við Reykjavíkurleikana (RIG) en ráðstefnan er samstarfsverkefni ÍSÍ, UMFÍ, ÍBR og HR. Ráðstefnan hefur fengið heitið Meira eða minna afreks? en hún einblínir á snemmtæka afreksvæðingu í íþróttum bara og ungmenna og áhrif hennar á ungt fólk. Ráðstefnan er einstakt tækifæri til að heyra í alþjóðlegum og innlendum sérfræðingum segja frá nýjustu rannsóknum og ræða mikilvægi þess að hafa jafnvægi milli keppni og vellíðanar í íþróttum barna og ungmenna. Ráðstefnan leitar að svara við eftirfarandi spurningum: Hvenær ætti sérhæfing barna og ungmenna í íþróttum að hefjast? Hvernig getum við mótað framtíðar afreksfólk án þess að fórna leikgleðinni? Verða bestu börnin endilega afreksfólk í framtíðinni? Á meðal fyrirlesara eru: Dr. Carsten Hvid Larsen, yfirsálfræðingur danska knattspyrnusambandsins, en hann er dósent við Háskólann í Suður Danmörku. Katie Castle er sálfræðingur og fyrrverandi afrekskona í fimleikum og þjálfari. Christian Thue Björndal, er dósent við Norska Íþróttaháskólann í Ósló og hefur unnið sem handboltaþjálfari og rannsakandi. Daði Rafnsson, sálfræðingur og doktorsnemi við Háskólann í Reykjavík með mikla reynslu í knattspyrnuþjálfun. Nánari dagskrá og tímasetningar má finna hér: Skráning er bæði í sal og í streymi Ráðstefnustýra verður Silja Úlfarsdóttir. Enginn íþróttaþjálfari ætti að láta þessa ráðstefnu fram hjá sér fara! Ráðstefnan er einnig einstaklega gott tækifæri fyrir foreldra íþróttabarna til að fræðast um þetta mikilvæga málefni.


Viðburðir

  • 17.01.2026 Skautafjör á Laugarvatni
  • 19.01.2026 Fundur með félögum í uppsveitum Árnessýslu
  • 20.01.2026 Skil á skýrslu um starf aðildarfélaga HSK
  • 21.01.2026 Ráðstefnan Meira eða minna afreks?
  • 09.02.2026 Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 19.02.2026 Formannafundur HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

08.12

Sveitakeppni HSK í skák

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

16.11

Unglimgamót HSK í sundi

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is