Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Hinsegin börn og ungmenni í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi

28.10.2024 - 28.10.2024

HSK vekur athygli á eftirfarandi viðburði: Mánudaginn 28. október kl.12.30-14.00 halda Samtökin '78 kynningu á fræðsluefni undir yfirskriftinni Hinsegin börn og ungmenni í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi. Kynningin verður haldin í Íþróttamiðstöðinni Engjavegi 6, í sal B og C á 3. hæð. Kynntir verða þrír bæklingar, sem allir innihalda leiðbeiningar til þeirra sem bera ábyrgð á íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi, en hver bæklingur hefur sitt sérkenni: I. Stöðvum fordóma og mismunun II. Sýnilegur stuðningur III. Aðstaða og mót Samhliða bæklingunum verða kynnt tvö plaköt, Fordómabyggingin annars vegar, sem sýnir hvernig fordómar leiða með stigvaxandi hætti til ofbeldis og Vítahring fordóma í íþróttum hins vegar, sem tekur til þeirra aðstæðna sem geta leitt til brottfalls hinsegin barna og ungmenna úr skipulögðu starfi. Efnið er afrakstur verkefnis sem Samtökin '78 vann með og fyrir mennta- og barnamálaráðuneytið og er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum hinsegin fólks. Eitt af meginmarkmiðum ÍSÍ er að berjast gegn hvers konar mismunun og ofbeldi í íþróttum, hvort sem um er að tefla mismunun vegna kynþáttar, trúarbragða, stjórnmálaskoðana, kynferðis, kynhneigðar eða af öðrum toga. HSK hvetur öll, sem málið varðar, til að mæta á kynninguna.


Viðburðir

  • 18.09.2026 Ungmennaráðstefnan Ungt fólk og lýðheilsa
  • 09.10.2026 Sambandsráðsfundur UMFÍ
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

21.05

Frjálsar, Vormót HSK

24.04

Blak, héraðsmót unglinga

21.04

Sund, aldursflokkamót

22.03

Borðtennis, héraðsmót

21.03

Frjálsar, héraðsmót innanhúss

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is