Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Landsátakið Syndum

01.11.2024 - 01.11.2024

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2024. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Sjá nánar á www.syndum.is. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er frábær hreyfing bæði til þess að hlúa að heilsunni og sem skemmtileg tómstundaiðja. Syndum er verkefni undir Íþróttaviku Evrópu og styrkt af Evrópusambandinu. Markmið Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna þannig við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Átakið var fyrst haldið 2021 og þá syntu landsmenn samtals 11,6 hringi í kringum landið. Í fyrra voru syntir rúmlega 20 hringir en markmiðið í ár er að fá enn fleiri til að vera með og uppgötva hvað sund er frábær alhliða hreyfing. HSK hvetur sunnlendinga til þátttöku í þessu góða heilsueflingarátaki íþróttahreyfingarinnar.


Viðburðir

  • 17.01.2026 Skautafjör á Laugarvatni
  • 19.01.2026 Fundur með félögum í uppsveitum Árnessýslu
  • 20.01.2026 Skil á skýrslu um starf aðildarfélaga HSK
  • 21.01.2026 Ráðstefnan Meira eða minna afreks?
  • 09.02.2026 Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 19.02.2026 Formannafundur HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

08.12

Sveitakeppni HSK í skák

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

16.11

Unglimgamót HSK í sundi

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is