Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Verkefnið Göngum í skólann

02.10.2024 - 02.10.2024

Verkefnið Göngum í skólann 2024 hófst 4. september og stendur til 2. október. Meginmarkmið Göngum í skólann er að hvetja nemendur og foreldra á Íslandi til að ganga, hjóla eða nota annan virkan ferðamáta til og frá skóla, hvetja til aukinnar hreyfingar og fræða börn um ávinning reglulegrar hreyfingar. Með þessu er ætlunin að hvetja til heilbrigðs lífsstíls fyrir alla fjölskylduna en hreyfing vinnur m.a. gegn lífsstílstengdum sjúkdómum, stuðlar að streitulosun og betri sjálfsmynd. Einnig er markmiðið að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og kenna reglur um öryggi á göngu og á hjóli. Þar að auki er markmiðið að draga úr umferð við skóla og stuðla að betra og hreinna lofti ásamt öruggari og friðsælli götum og hverfi. Um leið er verið að stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál. Í ár tekur Ísland þátt í 18. skipti í alþjóðlega verkefninu Göngum í skólann. Á alþjóðavísu er Göngum í skólann mánuðurinn í október og Alþjóðlegi Göngum í skólann dagurinn er 2. október. Vegna birtu og veðuraðstæðna fer Göngum í skólann verkefnið fram hér á Íslandi í septembermánuði og því lýkur á Alþjóðlega Göngum í skólann deginum þann 2. október. Þátttökuskólum í Göngum í skólann, hefur fjölgað jafnt og þétt með árunum. Fyrst þegar verkefnið fór af stað árið 2007 tóku 26 skólar þátt en í fyrra voru samtals 83 skólar skráðir til þátttöku. Það er einfalt að skrá skóla með í verkefnið, það eina sem þarf að gera er að smella hér og fylla inn nokkrar upplýsingar um skólann. Þeir sem að verkefninu standa hérlendis eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Mennta- og barnamálaráðuneytið, Embætti landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Samgöngustofa og Landssamtökin Heimili og skóli. Vefsíða verkefnisins og skráning er á www.gongumiskolann.is. HSK hvetur skólana á Suðurlandi og nemendur þeirra til að taka þátt í verkefninu.


Viðburðir

  • 17.01.2026 Skautafjör á Laugarvatni
  • 19.01.2026 Fundur með félögum í uppsveitum Árnessýslu
  • 20.01.2026 Skil á skýrslu um starf aðildarfélaga HSK
  • 21.01.2026 Ráðstefnan Meira eða minna afreks?
  • 09.02.2026 Vorfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 19.02.2026 Formannafundur HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

08.12

Sveitakeppni HSK í skák

04.12

Fjórðungsglíma Suðurlands

29.11

Bridds, sveitakeppni 2025

17.11

Blak, héraðsmót kavenna, fyrst...

16.11

Unglimgamót HSK í sundi

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

22.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is