Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði 2024

20.09.2024 - 22.09.2024

Ungmennaráð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) stendur fyrir ungmennaráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði dagana 20. til 22. september á Reykjum í Hrútafirði. Yfirskrift ráðstefnunnar er: Ungt fólk og lýðheilsa. Eins og nafnið gefur til kynna er ráðstefnan fyrir ungt fólk á aldrinum 15 - 30 ára. Allt ungt fólk á tilsettum aldri er velkomið á ráðstefnuna. TÆKIFÆRI TIL SKOÐANASKIPTA Ungt fólk sem hefur komið á ráðstefnuna í gegnum árin segir hana haft afar góð áhrif. Fólk hafi aukið félagslega hæfni sína og lært að vinna með gildi eins og samstöðu, lýðræði og vináttu. Valdefling hafi falist í þátttökunni. Þátttakendur hljóta tækifæri til að mynda sér skoðanir og koma þeim á framfæri við jafningja og ráðafólk. Viðburðurinn gefur þannig þátttakendum tækifæri til að hlusta á ólíkar upplifanir og sjónarmið, brjóta ísinn í samskiptum við aðra og fara út fyrir þægindarammann. FJÖLBREYTT DAGSKRÁ Dagskráin verður eins og alltaf með fjölbreyttu sniði. Boðið er upp á hópefli og samveru, áhugaverðan fróðleik og uppörvandi og hvetjandi vinnustofur. Fólk úr stjórnmálum og atvinnulífi mætir á ráðstefnuna og fá þátttakendur tækifæri til að byggja upp tengslanet til framtíðar. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því þarf að haska sér með skráningu. Fullorðinn einstaklingur þarf að fylgja þátttakendum yngri en 18 ára. Þátttökugjald er 15.000 kr. fyrir hvern þátttakanda. Innifalið eru ferðir, uppihald og ráðstefnugögn. Rúta fer frá þjónustumiðstöð UMFÍ í Reykjavík á föstudeginum og til baka á sunnudeginum sem þátttakendur eru hvattir til þess að nýta sér. Fyrir þau sem ekki geta nýtt sér rútuna er hægt að sækja um styrk fyrir ferðakostnaði til UMFÍ. Skila þarf inn kvittunum á sérstöku eyðublaði sem sent verður út eftir viðburðinn. Athygli er vakin á því að viðburðurinn er vímuefnalaus, það sama á við um rafsígarettur og nikótínpúða. Skráning er hafin og stendur til 11. september. Hér er hlekkur á skráningarform: https://forms.gle/Jo7Zig2U88zyMaNu5 Hér er viðburður á Facebook: https://www.facebook.com/events/460228883173591/ Allar upplýsingar um ráðstefnuna má finna á www.umfi.is.


Viðburðir

  • 15.05.2025 Héraðsmót HSK í sundi
  • 16.05.2025 Íþróttaþing ÍSÍ
  • 19.05.2025 Morgunfundur um stuðning sveitarfélaga við íþ..
  • 20.05.2025 Umsóknir í Hvatasjóð
  • 09.06.2025 Sumarfjarnám ÍSÍ í þjálfaramenntun
  • 15.06.2025 Bláskógaskokk HSK
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

11.04

Blak, héraðsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, héraðsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

02.01

Bridds, HSK tvímenningur

15.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Héraðsleikar og aldursflokkamó..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.05

Sund, héraðsmót

15.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is