Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráđ
  • |
  • Ađildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerđir
  • |
  • Fundargerđir
  • |
  • Verkefnasjóđur
  • |
  • Um HSK
Hérađssambandiđ Skarphéđinn

Reglugerđ um hérađsmót HSK í frjálsíţróttum

1. grein

Héraðsmót HSK í frjálsíþróttum eru keppnir milli aðildarfélaga HSK í frjálsíþróttum. Úrslit skulu færð á heildarstigatöflu HSK samkvæmt samþykktum héraðsþings HSK. Keppni í einstökum greinum er jafnframt einstaklingskeppni um héraðsmeistaratitil HSK í viðkomandi grein. Undantekning eru þó héraðsleikar HSK þar sem fyrst og fremst er miðað að fjöldaþátttöku.

2. grein

Frjálsíþróttaráð HSK gengst árlega fyrir eftirtöldum mótum innanhúss þar sem keppt er í eftirtöldum greinum og flokkum:

a) Héraðsmót HSK innanhúss. Mótið fer fram á einum eða tveimur dögum.

Konur: Langstökk án atrennu - hástökk - þrístökk án atrennu - hástökk án atrennu - kúluvarp - stangarstökk.

Karlar: Langstökk án atrennu - hástökk - þrístökk án atrennu - hástökk án atrennu - kúluvarp - stangarstökk.

Sé keppt innanhúss við aukna aðstöðu  á einum degi  skal keppt í eftirtöldum greinum:

Konur: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup  – 60m  grindarhlaup- 800 m hlaup .

Karlar: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup  – 60m  grindahlaup- 800 m hlaup .

Sé keppt innanhúss við aukna aðstöðu  á tveimur dögum  skal keppt í eftirtöldum greinum:

Konur: Langstökk með atrennu – hástökk – þrístökk með atrennu – kúluvarp – stangarstökk – 60 m hlaup – 60m  grindahlaup – 200 m hlaup – 800 m hlaup – 4x200 m boðhlaup.

Karlar: Langstökk með atrennu – hástökk – þrístökk með atrennu – kúluvarp – stangarstökk – 60 m hlaup – 60m  grindahlaup – 200 m hlaup – 800 m hlaup – 4x200 m boðhlaup.

 

b) Unglingamót HSK innanhúss. Mótið fer fram á einum degi.

Piltar 18 - 22 ára: Langstökk án atrennu - hástökk - þrístökk án atrennu - hástökk án atrennu - kúluvarp - stangarstökk.

Stúlkur 18- 22 ára: Langstökk án atrennu - hástökk - þrístökk án atrennu - hástökk án atrennu - kúluvarp - stangarstökk.

Piltar 16-17 ára: Langstökk án atrennu - hástökk - þrístökk án atrennu – kúluvarp

Stúlkur 16-17 ára: Langstökk án atrennu - hástökk - þrístökk án atrennu – kúluvarp

Piltar 15 ára: Langstökk án atrennu - hástökk - þrístökk án atrennu – kúluvarp

Stúlkur 15 ára: Langstökk án atrennu - hástökk - þrístökk án atrennu - kúluvarp

 

Sé keppt innanhúss við aukna aðstöðu, skal keppt í eftirtöldum greinum:

Piltar 18 –22 ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 60 m grindahlaup – 800 m hlaup.

Stúlkur  18-22 ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 60 m grindahlaup – 800 m hlaup.

Piltar 16-17  ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 60 m grindahlaup – 800 m hlaup.

 Stúlkur 16-17 ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 60 m grindahlaup – 800 m hlaup.

Stúlkur 15 ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 60 m grindahlaup – 800  m hlaup.

 Piltar 15 ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 60 m grindahlaup – 800  m hlaup.

 

c) Aldursflokkamót HSK innanhúss: Mótið fer fram á einum degi.

Stúlkur 14 ára: Langstökk án atrennu - hástökk - þrístökk án atrennu – kúluvarp.

Piltar 14 ára: Langstökk án atrennu - hástökk - þrístökk án atrennu – kúluvarp.

Stúlkur 13 ára: Langstökk án atrennu - hástökk - þrístökk án atrennu – kúluvarp.

Piltar 13 ára: Langstökk án atrennu - hástökk - þrístökk án atrennu – kúluvarp.

Stúlkur 12 ára: Langstökk án atrennu - hástökk – kúluvarp.

Piltar 12 ára: Langstökk án atrennu – hástökk – kúluvarp.

Stúlkur 11 ára: Langstökk án atrennu – hástökk – kúluvarp.

Piltar 11 ára: Langstökk án atrennu – hástökk – kúluvarp.

 

Sé keppt innanhúss við aukna aðstöðu, skal keppt í eftirtöldum greinum:

Stúlkur 14 ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 60 m grindahlaup – 600 m hlaup.

Piltar 14 ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 60 m grindahlaup – 600 m hlaup.

Stúlkur 13 ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 60 m grindahlaup – 600 m hlaup.

Piltar 13 ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 60 m grindahlaup – 600 m hlaup.

Stúlkur 12 ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 60 m grindahlaup – 600 m hlaup.

Piltar 12 ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 60 m grindahlaup – 600 m hlaup.

Stúlkur 11 ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 600 m hlaup.

Piltar 11 ára: Langstökk með atrennu – hástökk – kúluvarp – 60 m hlaup – 600 m hlaup.

 

d) Héraðsleikar HSK innanhúss: Mótið fer fram á einum degi.

Frjálsíþróttaráð HSK skal einnig á hverju ári halda sérstök mót, fyrir keppendur aðildarfélaga sinna 10 ára og yngri, sem heita Héraðsleikar HSK. Stjórn ráðsins ákveður greinar og nánari framkvæmd þessarra móta.

Leitast skal við að hafa fjöldaþátttöku og leikgleði í fyrirrúmi en draga úr harðri keppni einstaklinga.

 

3. grein

Frjálsíþróttaráð HSK gengst árlega fyrir eftirtöldum mótum utanhúss þar sem keppt er í eftirtöldum greinum og flokkum.

 

a) Héraðsmót HSK utanhúss: Mótið fer fram á tveimur dögum.

Konur: 100 m hlaup - 100 m gr. hlaup - 200 m hlaup - 400 m hlaup - 800 m hlaup - 1500 m hlaup - 4x100 m boðhlaup - hástökk - langstökk - þrístökk - stangarstökk - spjótkast - kringlukast - kúluvarp - sleggjukast.

Karlar: 100 m hlaup - 110 m gr. hlaup - 200 m hlaup - 400 m hlaup - 800 m hlaup - 1500 m hlaup - 5000 m hlaup - 4x100 m boðhlaup hástökk - langstökk - þrístökk - stangarstökk - spjótkast - kringlukast - kúluvarp - sleggjukast.

 

b) Unglingamót HSK utanhúss:  Mótið fer fram á einum degi.

Stúlkur 20-22 ára: 100 m hlaup - 100 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk - spjótkast - kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Piltar 20-22 ára: 100 m hlaup - 110 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk - spjótkast - kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Stúlkur 18-19 ára: 100 m hlaup - 100 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk -spjótkast – kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Piltar 18-19 ára:   100 m hlaup - 100 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk -spjótkast – kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Stúlkur 16-17 ára: 100 m hlaup - 100 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk -spjótkast – kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Piltar 16-17 ára: 100 m hlaup - 100 m gr. hlaup - 800 m hlaup - hástökk - langstökk - spjótkast – kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Stúlkur 15 ára: 100 m hlaup - 100 m gr. hlaup – 600 m hlaup - hástökk - langstökk -spjótkast – kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

Piltar 15 ára: 100 m hlaup - 100 m gr. hlaup - 600 m hlaup - hástökk - langstökk -spjótkast – kúluvarp - 4x100 m boðhlaup.

 

c) Aldursflokkamót HSK utanhúss: Mótið fer fram á einum degi.

Stúlkur 14 ára: 100 m hlaup - 600 m hlaup - 4x100 m boðhlaup - langstökk - hástökk - kúluvarp – spjótkast – 80m grindahlaup.

Piltar 14 ára: 100 m hlaup - 600 m hlaup - 4x100 m boðhlaup - langstökk - hástökk - kúluvarp – spjótkast - 80m grindahlaup.

Stúlkur 13 ára: 100 m hlaup - 600 m hlaup - langstökk - hástökk - kúluvarp – spjótkast -80m grindahlaup.

Piltar 13 ára: 100 m hlaup - 600 m hlaup - langstökk - hástökk - kúluvarp – spjótkast - 80m grindahlaup.

Stúlkur 12 ára: 60 m hlaup - 60m grindahlaup - 600 m hlaup - langstökk - hástökk – kúluvarp – spjótkast.

Piltar 12 ára: 60 m hlaup - 60m grindahlaup - 600 m hlaup - langstökk - hástökk – kúluvarp – spjótkast.

Stúlkur 11 ára: 60 m hlaup - 600 m hlaup - langstökk - hástökk – kúluvarp – spjótkast.

Piltar 11 ára: 60 m hlaup - 600 m hlaup - langstökk - hástökk – kúluvarp – spjótkast.

 

d) Héraðsleikar HSK utanhúss: Mótið fer fram á einum degi.

Frjálsíþróttaráð HSK skal einnig á hverju ári halda sérstök mót, fyrir keppendur aðildarfélaga sinna 10 ára og yngri, sem heita Héraðsleikar HSK. Stjórn ráðsins ákveður greinar og nánari framkvæmd þessarra móta.

Leitast skal við að hafa fjöldaþátttöku og leikgleði í fyrirrúmi en draga úr harðri keppni einstaklinga.

4. grein

Á innanhússmótunum er heimilt að keppa í 6 greinum á á héraðsmóti fullorðinna auk boðhlaups. Engar hömlur eru settar á fjölda þátttökugreina einstaklinga á unglingamótinu, aldursflokkamótinu og héraðsleikunum innanhúss. Á utanhússmótunum er heimilt að keppa í 6 greinum á héraðsmóti fullorðinna auk boðhlaups. Engar hömlur eru settar á fjölda þátttökugreina einstaklinga á unglingamótinu, aldursflokkamótinu og héraðsleikunum utanhúss.

5. grein

Keppendur á Unglingamótum HSK, Aldursflokkamótum HSK og Héraðsleikum HSK er ekki heimilt að keppa upp fyrir sig í aldri hvorki sem gestir né til stiga. Þetta á þó ekki við í 4x100 m boðhlaupi í Aldursflokkamóti HSK og Unglingamóti HSK. Á Héraðsmótum HSK er 13 ára og eldri heimilt að keppa í karla- og kvennaflokkum. Það á þó ekki við ef héraðsmót í viðkomandi aldursflokki er haldið á sama tíma. Til þess að geta tekið þátt í boðhlaupum þurfa þátttakendur að vera skráðir í viðkomandi mót.

6. grein

Gestaþáttaka er heimil í 5000 m hlaupi karla á Héraðsmóti HSK utanhúss en það hlaup er kennt við Jón H. Sigurðsson hlaupara úr HSK. Önnur gestaþátttaka er háð samþykkt stjórnar frjálsíþróttaráðs HSK hverju sinni.

7. grein

Frjálsíþróttaráð HSK tilkynnir aðildarfélögum hvar og hvenær mótin eru haldin og gefur út hvenær skráningafrestur rennur út. Eftir að skráningafrestur er útrunninn er ekki hægt að gera breytingar á skráningum.

Frjálsíþróttaráð HSK úthlutar aðildarfélögunum greinum  til að framkvæma á mótum ráðsins.

8. grein

Sex fyrstu í hverri grein fá stig fyrir sitt félag. 1. sæti getur 6 stig, 2. sæti 5 stig o.s.fr. Það félag sem flest stig fær á hverju móti sigrar. Verði félög jöfn að stigum sigrar það félag sem á fleiri sigurverara á mótinu. Þetta á ekki við á Héraðsleikum HSK.

 

9. grein

Þrír fyrstu í hverri grein á Héraðsmótunum, Unglingamótunum og Aldursflokkamótunum fá verðlaunapening. Allir þátttakendur á Héraðsleikunum fá viðurkenningu. Auk þess eru veitt eftirfarandi sérverðlaun.  Til viðbótar  þessu er veittur farandgripur til sigurvegara í 5000 m hlaupi karla á Héraðsmóti utanhúss, svokölluðu Jónshlaupi.

A) Héraðsmót HSK innanhúss

1. Stigahæsta félag.

 

B) Unglingamót HSK innanhúss

1. Stigahæsta félag.

 

C) Aldursflokkamót HSK innanhúss

1. Stigahæsta félag.

 

D) Héraðsmót HSK utanhúss

1. Stigahæsta félag

2. Stigahæsta kona

3. Stigahæsti karl.

4. Sigurvegari í 5000 m hlaupi karla (Jónshlaup)

 

E) Unglingamót HSK utanhúss

1. Stigahæsta félag.

 F) Aldursflokkamót HSK utanhúss

1. Stigahæsta félag.

10. grein

Stjórn Frjálsíþróttaráðs HSK getur gert breytingar á reglugerð þessarri sem gilda þá fram að næsta félaga- eða aðalfundi ráðsins þar sem þær skulu lagðar fram til endanlegrar afgreiðslu.

Reglur þessar taka gildi þegar aðalfundur eða félagafundur Frjálsíþróttaráðs HSK hefur samþykkt þær.

Samþykkt á áðalfundi frjálsíþróttaráðs 2010,
5. og 9. grein breytt á aðalfundi 2015
breyting gerð á 2. og 3. grein á aðalfundi ráðsins 2016,
breyting gerð á 2., 3. og 5. grein á aðalfundi ráðsins 2017.

breyting gerð á 2.,3.,4.,5.,6.,og 9.grein á aðalfundi ráðsins 2018.

 

Tilbaka 

Viđburđir

  • 15.05.2025 Hérađsmót HSK í sundi
  • 16.05.2025 Íţróttaţing ÍSÍ
  • 19.05.2025 Morgunfundur um stuđning sveitarfélaga viđ íţ..
  • 20.05.2025 Umsóknir í Hvatasjóđ
  • 09.06.2025 Sumarfjarnám ÍSÍ í ţjálfaramenntun
  • 15.06.2025 Bláskógaskokk HSK
  • Fleiri viđburđir
  • HSK met
  • Sögulegur fróđleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit hérađsmóta

11.04

Blak, hérađsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, hérađsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

02.01

Bridds, HSK tvímenningur

15.12

Taekwondo, hérađsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Hérađsmótiđ í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Hérađsleikar og aldursflokkamó..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.05

Sund, hérađsmót

15.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Hérađssambandiđ Skarphéđinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is