Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Reglugerð fyrir badmintonmót HSK

1. gr.

Þátttökurétt eiga öll aðildarfélög HSK sem tilkynna þátttöku innan tilgreinds tíma.

2. gr.

Keppnisfyrirkomulag héraðsmóta HSK: Unglingamót, einliðaleiksmót Mótið skal haldið í október ár hvert. Keppt er í öllum flokkum unglinga samkvæmt skiptingu Badmintonsambands Íslands. Unglingamót, tvíliða og tvenndarleiksmót Mótið skal haldið í nóvember ár hvert. Keppt er í öllum flokkum unglinga samkvæmt skiptingu Badmintonsambands Íslands, að undanskildum yngsta flokknum (snáðar og snótir - 10 ára) Héraðsmót Mótið skal haldið í apríl ár hvert. Keppt skal í öllum greinum. Ef ekki er hægt að spila mótið á einum degi skal það standa í tvo daga. Keppt er í karlaflokki, kvennaflokki, öldungaflokki og öllum flokkum unglinga.

3. gr.

Keppandi skal keppa í þeim flokki sem hann hefur aldur til, nema þátttaka falli niður í hans flokki, þá er heimilt að keppa í einum flokki ofar.

4. gr.

Badmintonnefnd hefur ákvörðunarvald varðandi keppnisfyrirkomulag hverju sinni. Stigagjöf fyrir árangur skal vera sem hér segir: 1. sæti gefur 6 stig, 2. sæti 5 stig, 3. sæti 4 stig og 4. sæti 3 stig. Stigahæsta félag fær farandbikar.

5. gr.

Heimilt er badmintonnefnd að fela einstökum félögum framkvæmd mótanna og skipta má unglingamóti á milli tveggja félaga.

6. gr.

Auglýsa skal mót með a.m.k. 2ja vikna fyrirvara og þátttöku skal tilkynna eigi síðar en 1 viku fyrir mót. Þátttökugjald greiðist af skráðu nafni í grein og mótagjöld skulu vera í samræmi við mót sem haldin eru á vegum Badmintonsambands Íslands.

7. gr.

Á öllum mótum skal vera dómari með réttindi og skal hann úrskurða í öllum deilumálum.

8. gr.

Öll kærumál varðandi agabrot leikmanna skal senda til aganefndar HSK.

9. gr.

Reglur þessar lagðar fram á héraðsþingi HSK 24. febrúar 1996 og taka gildi frá og með 1. maí 1996.

Tilbaka 

Viðburðir

  • 15.04.2026 Opið fyrir starfsskýrsluskil
  • 15.04.2026 Ársþing Taekwondosambands Íslands
  • 15.04.2026 Umsóknir í Umhverfisjóð UMFÍ
  • 15.04.2026 Aðalfundur Frjálsíþróttaráðs HSK
  • 21.04.2026 Aldursflokkamót HSK í sundi
  • 25.04.2026 Skotþing 2026
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

22.03

Borðtennis, héraðsmót

11.01

Frjálsar, aldursflokkamót 11-1...

11.01

Frjálsar, unglingamót 15-22 ár...

08.01

Bridds, HSK tvímenningur 2026

14.12

Taekwondo, héraðsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

21.04

Sund, aldursflokkamót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is