Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráđ
  • |
  • Ađildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerđir
  • |
  • Fundargerđir
  • |
  • Verkefnasjóđur
  • |
  • Um HSK
Hérađssambandiđ Skarphéđinn

Lög HSK

Lög Héraðssambandsins Skarphéðins

1. gr.

Sambandið heitir Héraðssambandið Skarphéðinn, skammstafað HSK.

 

2. gr.

Tilgangur sambandsins er að halda uppi fjölbreyttu íþrótta- og félagsmálastarfi meðal félaga innan sambandsins, er starfa að öðru leyti samkvæmt 3. grein sambandslaga UMFÍ og 4. grein laga ÍSÍ.

 

3. gr.

Sambandssvæðið er Árnes- og Rangárvallasýslur.

4. gr.

Rétt til inngöngu í sambandið eiga öll ungmenna- og íþróttafélög á sambandssvæðinu, sem hafa lög sín í samræmi við lög og stefnuskrá HSK, UMFÍ og ÍSÍ.

Vilji félag ganga í sambandið, sendir það stjórn þess skriflega inntökubeiðni og lætur fylgja afrit af lögum félagsins, félagaskrá og hverjir skipi stjórn þess. Inntaka nýs félags verður að hljóta samþykki héraðsþings, en þó getur stjórn veitt bráðabirgðaaðild til næsta héraðsþings.

 

5. gr.

Vilji félag ganga úr sambandinu, telst úrsögn því aðeins lögmæt að hún hafi verið samþykkt á löglegum aðalfundi viðkomandi félags og miðist úrsögn við næstu áramót. Skriflega úrsögn skal senda til stjórnar HSK, sem síðan tilkynnir hana á héraðsþingi. Eigi getur félag, sem gengur úr sambandinu krafist endurgjalds á fé, sem það hefur lagt til sambandsins eða nokkurs hluta af eignum þess. Úrsögn viðkomandi félags er eigi tekin gild nema félagið sé skuldlaust við sambandið.

 

6. gr.

Aðildarfélögum HSK er skylt að halda aðalfund árlega og senda ársreikning til stjórnar HSK að fundi loknum.

Fyrir 15. apríl ár hvert ber félögum að skila starfsskýrslu á forriti sem ÍSÍ og UMFÍ leggur til.  Félögum ber að greiða skatt til HSK fyrir hvern skattskyldan félagsmann, 7 ára og eldri, samkvæmt ákvörðun héraðsþings.  Ef félag stendur ekki við þessar skuldbindingar, telst það ekki starfandi og skal stjórn HSK þá vísa því úr sambandinu að undangenginni aðvörun.

Stjórn HSK skal tilkynna héraðsþingi um brottfellingu félaga samkvæmt þessari grein.

Óski félag sem fellt hefur verið úr sambandinu samkvæmt þessari grein að nýju eftir aðild að HSK skal fara með umsóknina samkvæmt 4. grein.

 

7. gr.
Héraðsþing skal háð fyrir lok mars ár hvert. Skal stjórnin boða til þess bréflega með minnst mánaðar fyrirvara. Síðara fundarboð með dagskrá og upplýsingum um tillögur og mál sem stjórn leggur fyrir héraðsþing skulu send til aðildarfélaga og sérráða með minnst viku fyrirvara.

Hvert félag tilnefnir fulltrúa á héraðsþing þannig að fyrir 1 - 200 félagsmenn fær félag einn fulltrúa, frá 201 - 400 tvo fulltrúa, frá 401 - 700 þrjá fulltrúa, 701 – 1000 fjóra fulltrúa o.s.fr. Fulltrúafjöldi félaga miðast við félagatal síðastliðins starfsárs. Þá eiga  sérráð sambandsins rétt á að senda einn fulltrúa hvert.

Lögmætt er héraðsþing ef helmingur sambandsfélaganna sendir fulltrúa til þess. Stjórn er heimilt að krefjast þess að tillögur sem leggja á fram á héraðsþingi hafi borist stjórninni viku áður en þingið hefst og stjórn er skylt að tilkynna það í þingboði.

Eigi má fulltrúi á héraðsþingi fara með nema eitt atkvæði. Atkvæðisrétt á héraðsþingi hafa rétt kjörnir fulltrúar þeirra félaga, sem skuldlaus eru við sambandið þegar þingið fer fram.

 

8. gr.

Héraðsþing tekur ákvarðanir um starfsemi sambandsins á komandi starfsári, úrskurðar reikninga sambandsins og semur fjárhagsáætlun næsta árs. Það kýs fimm í stjórn: formann, ritara, gjaldkera, varaformann og einn meðstjórnanda. Héraðsþing kýs þrjá menn í varastjórn og tvo endurskoðendur. Heimilt er að kjósa starfsnefndir til að annast ýmis mál sem héraðsþing og stjórn kunnu að fela þeim. Kjósa skal fulltrúa á þing ÍSÍ það ár sem þing ÍSÍ er haldið, samkvæmt 12. grein laga ÍSÍ. Heimilt er stjórn að kjósa þriggja manna framkvæmdastjórn.

 

9. gr.

Heimilt er stjórninni að kalla saman aukaþing ef hún telur þess þörf, en það er skylt ef þriðjungur aðildarfélaga óskar þess. Aukaþing skal skipað á sama hátt og næsta héraðsþing á undan og miðast fulltrúafjöldi hvers félags við það félagatal þeirra sem gilti á næsta reglulega héraðsþingi á undan. Til aukaþings skal boðað bréflega með a.m.k. viku fyrirvara. Helstu fundarefna skal getið í fundarboði.

Á aukaþingi má ekki gera laga- né leikreglnabreytingar og ekki kjósa stjórn, nema bráðabirgðastjórn eða meirihluti kjörinnar aðalstjórnar hafi sagt af sér eða hætt störfum af öðrum orsökum, eða stjórnin hafi að eigin dómi orðið óstarfhæf.

 

10. gr.

Stjórn sambandsins ásamt formönnum aðildarfélaga, sérráða og nefnda er heimilt að koma saman til formannafundar ef stjórn og/eða aðildarfélög sjá ástæðu til. Ákvarðanir formannafundar eru bindandi fyrir stjórn og framkvæmdastjórn, enda brjóti þær ekki í bága við ákvarðanir héraðsþings.

 

11. gr.

Stjórn sambandsins er heimilt að stofna sérráð ef tvö eða fleiri félög hafa sömu íþróttagrein á stefnuskrá sinni. Ef meirihluti þeirra aðildarfélaga sem iðka viðkomandi grein óska þess skal stjórn HSK skipa nefnd sem vinnur að undirbúningi að stofnun sérráðs. Stjórn HSK boðar aðildarfélögin til stofnfundar sérráða. Stjórn sambandsins og viðkomandi sérsamband skulu staðfesta lög og lagabreytingar. Stofnun sérráða verður að fá staðfestingu héraðsþings HSK.

Stjórn sérráða skal skila ársskýrslu og reikningum til stjórnar HSK fyrir lok janúar ár hvert. Sérráðum er ekki heimil lántaka fjármuna nema með samþykki stjórnar HSK. Að öðru leyti starfar sérráð samkvæmt 27. - 29. grein laga ÍSÍ.

 

12. gr.

Heiðursformann Héraðssambandsins Skarphéðins má héraðsþing kjósa ef tveir þriðju af mættum þingfulltrúum eru samþykkir því. Heiðursformaður HSK skal hafa rétt til að sitja fundi stjórnar, formannafund og héraðsþing. Hafi hann þar málfrelsi og tillögurétt. Heiðursformaður HSK kemur fram fyrir hönd HSK við tækifæri sem formaður og stjórn kunna að fela honum.

 

13. gr.

Stjórn sambandsins annast framkvæmdir þeirra mála sem héraðsþing hefur samþykkt að framkvæma skuli. Hún staðfestir lög aðildarfélaga og fylgist með því að starfsemi þeirra fari fram samkvæmt gildandi lögum. Hún safnar skýrslum félaganna og sendir þær til stjórnar UMFÍ og til stjórnar ÍSÍ. Hún innheimtir það fé, sem sambandinu áskotnast, ávaxtar sjóðinn og fer með hann samkvæmt fjárhagsáætlun er héraðsþing hefur samið. Skylt er stjórninni að leggja fram á héraðsþingi glöggan reikning yfir tekjur og gjöld sambandsins og skal í sameiningu ábyrgjast sjóðinn. Endurskoðun skal lokið fyrir héraðsþing. Reikningsárið er almanaksárið.

Þá hefur stjórn eftirlit með störfum ungmennafélaga á sambandssvæðinu og einstakra nefnda, er starfa á vegum sambandsins, ennfremur á stjórnin að stuðla að þátttöku fólks í starfi aðildarfélaganna. Vanræki aðildarfélag að halda aðalfund meira en heilt ár frá tilsettum tíma skal stjórnin, ef þörf krefur, boða til fundarins og sjá um framkvæmd hans. Félag telst ekki starfandi ef það heldur ekki aðalfund og skilar ekki starfsskýrslum ár hvert. Stjórnin semur skýrslu um störf sín og leggur hana fram ritaða á héraðsþingi, þannig að hún geti verið aðgengileg öllum er þingið sækja.

14. gr.

Stjórn fær endurgreiddan kostnað er hún kann að verða fyrir vegna starfa í þágu sambandsins. Dvalarkostnaður fulltrúa á héraðsþingi skal greiðast af viðkomandi félögum.

 

15. gr.

Hætti sambandið störfum skal af sjóði þess og öðrum skuldlausum eignum mynda sjóð, er beri nafn Skarphéðins og ávaxtist í viðskiptabanka sambandsins undir umsjá héraðsnefnda Árnes- ­og Rangárvallasýslu. Verði nýtt ungmennasamband stofnað á sambandssvæðinu innan 20 ára, rennur sjóðurinn óskertur til þess. Að þeim tíma liðnum skal nota sjóðinn til styrktar ungmenna- ­og íþróttafélögum á sambandssvæðinu. Gjörðabækur og önnur skjöl sambandsins skal afhenda héraðsskjalasöfnum Árnes- og Rangárvallasýslu til varðveislu. Verðlaunagripi og aðra minjagripi sambandsins skal afhenda héraðsbyggðasöfnum á sambandssvæðinu til varðveislu.

16. gr.

Lögum sambandsins má eigi breyta nema á héraðsþingi. Allar tillögur um lagabreytingar skulu hafa borist stjórn tveimur vikum fyrir þingið. Tvo þriðju hluta greiddra atkvæða þarf til lagabreytinga. Í öðrum málum ræður afl atkvæða úrslitum.

 

17. gr.

Lög þessi öðlast þegar gildi og jafnframt falla úr gildi eldri lög sambandsins.

 

                                                                           (Síðast breytt á héraðsþingi 2017)

 

 

 

Tilbaka 

Viđburđir

  • 15.05.2025 Hérađsmót HSK í sundi
  • 16.05.2025 Íţróttaţing ÍSÍ
  • 19.05.2025 Morgunfundur um stuđning sveitarfélaga viđ íţ..
  • 20.05.2025 Umsóknir í Hvatasjóđ
  • 09.06.2025 Sumarfjarnám ÍSÍ í ţjálfaramenntun
  • 15.06.2025 Bláskógaskokk HSK
  • Fleiri viđburđir
  • HSK met
  • Sögulegur fróđleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit hérađsmóta

11.04

Blak, hérađsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, hérađsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

02.01

Bridds, HSK tvímenningur

15.12

Taekwondo, hérađsmót

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Hérađsmótiđ í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Hérađsleikar og aldursflokkamó..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.05

Sund, hérađsmót

15.06

Bláskógaskokk HSK

logo

Hérađssambandiđ Skarphéđinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is