Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga

08.01.2024 - 08.01.2024

Vakin er athygli á því að umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið til umsóknar um styrki vegna keppniferða innanlands á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót ársins 2023. Umsóknarfrestur er til miðnættis mánudaginn 8. janúar 2024. Íþrótta- og ungmennafélög geta stofnað umsókn nú þegar og skráð inn í hana ferðir sem hafa þegar verið farnar, til að létta sér skráningarvinnu við umsóknarskilin. Ekki er þörf á að senda umsóknina fyrr en í lok árs. Á hverju ári er stofnuð ný umsókn í kerfinu og við það stofnast vefslóð sem viðkomandi fær senda í tölvupósti og gildir sem lykill inn í viðkomandi umsókn þar til hún hefur verið send í gegnum kerfið í lok umsóknartímabilsins eða þegar viðkomandi félag hefur skráð allar þær ferðir sem farnar hafa verið á styrkhæf mót innanlands það árið. Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga. Upplýsingasíða um sjóðinn. Þegar komið er inn á svæðið smellið þá á Sækja um ferðastyrk sem er ofarlega á síðunni. Þegar búið er að fylla út reitina í skemanu og ýta á Stofna, þá er hægt að fara að skrá ferðirnar. Vefslóð hefur þá líka verið send á skráð netfang tengiliðar og þarf stofnandi umsóknar að muna að gæta vel að vefslóðinni því hún er lykillinn inn á umsóknina út umsóknarferlið. Í hópíþróttagreinum eru einungis Íslandsmót styrkhæf en í einstaklingsíþróttagreinum eru einnig bikarmót, meistaramót og mótaraðir sem gefa stig til Íslandsmeistaratitils styrkhæf. Mótalisti hverrar íþróttar birtist um leið og umsókn hefur verið stofnuð og viðkomandi íþróttagrein valin. Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast sendið póst á Jón Reyni Reynisson hjá ÍSÍ á netfangið jon@isi.is.


Viðburðir

  • 04.12.2023 Héraðsmót HSK í skák
  • 05.12.2023 Íþróttaeldhugi ársins 2023, tilnefningar
  • 10.12.2023 HSK mót í taekwondo
  • 08.01.2024 Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

19.08

Starfsíþróttir, héraðsmót

03.08

Blak, hraðmót kvenna 2023

25.06

Sund, héraðsmót 2023

19.05

Blak, héraðsmót drengja 2023

19.05

Blak, héraðsmót stúlkna 2023

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Héraðsleikar og aldursflokkamó..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

04.12

Skák, héraðsmót

10.12

Taekwondo, héraðsmót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is