Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Umsóknir í Verkefnasjóð HSK berist fyrir 1. október

01.10.2023 - 01.10.2023

Verkefnasjóður HSK úthlutar tvisvar á ári úr sjóðnum. Umsóknir eiga að berast rafrænt á þar til gerðu umsóknareyðublaði á www.hsk.is fyrir 1. apríl eða 1. október ár hvert. Tilgangur Verkefnasjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf á sambandssvæði HSK, en sjóðurinn veitir ekki styrki til mannvirkjagerðar. Að öðru leyti fer úthlutun úr sjóðnum eftir mati stjórnar sjóðsins. Eingöngu stjórnir aðildarfélaga HSK, deildir aðildarfélaga, sérráð sambandsins og starfsnefndir Skarphéðins geta sótt um styrk úr sjóðnum. Ef félög og nefndir ætla að sækja um styrk úr sjóðnum til fleiri en eins verkefnis þarf að senda sér umsókn fyrir hvert verkefni fyrir sig. Hjálagt er reglugerð um Verkefnasjóðinn, hana er einnig að finna á heimasíðu HSK, slóðin er www.hsk.is. Við síðustu úthlutanir hefur sjóðsstjórn tekið mið af eftirtöldum forsendum: Menntun þjálfara, erlendis 50.000 kr. á einstakling Menntun þjálfara og dómara, innanlands, en þó að hámarki 20.000 kr. á einstakling Nýjungar í starfi/útbreiðsluverkefni, að hámarki 50.000 kr. á félag/nefnd/ráð Námskeiðahald, 50 % af útlögðum kostnaði, en þó að hámarki 50.000 kr. á félag/nefnd/ráð Landsliðsval 60.000 kr. á einstakling Nánari upplýsingar veitir Engilbert í síma 482 1189 og hsk@hsk.is.


Viðburðir

  • 04.12.2023 Héraðsmót HSK í skák
  • 05.12.2023 Íþróttaeldhugi ársins 2023, tilnefningar
  • 10.12.2023 HSK mót í taekwondo
  • 08.01.2024 Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

19.08

Starfsíþróttir, héraðsmót

03.08

Blak, hraðmót kvenna 2023

25.06

Sund, héraðsmót 2023

19.05

Blak, héraðsmót drengja 2023

19.05

Blak, héraðsmót stúlkna 2023

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Héraðsleikar og aldursflokkamó..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

04.12

Skák, héraðsmót

10.12

Taekwondo, héraðsmót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is