Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Fræðslu- og verkefnasjóður UMFÍ

01.11.2022 - 01.11.2022

Umsóknarfrestur til að sækja um styrki úr Fræðslu- og verkefnasjóði Ungmennafélags Íslands er til 1. nóvember nk. Umsóknum skal skilað rafrænt á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem er að finna á heimasíðu UMFÍ (www.umfi.is) undir styrkir. Markmið sjóðsins er að styrkja félags- og íþróttastarf ungmennafélagshreyfingarinnar í samræmi við stefnu UMFÍ, m.a. með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun í félagsmálum og félagsstarfi. Rétt til umsóknar úr sjóðnum eiga sambandsaðilar UMFÍ, aðildarfélög sem eru virk í starfi og deildir innan þeirra. Einnig eiga stjórn og nefndir UMFÍ rétt á að sækja um styrk úr sjóðunum. Sjóðurinn styrkir ekki tækja-, áhalda- og búnaðarkaup, fundakostnað (þ.m.t. veitingar) og almennan rekstur félaga. Í samræmi við reglugerð sjóðsins leggur sjóðsstjórn áherslu á að veita styrki til verkefna sem: eru til þess að fallin að auka þekkingu og fagmennsku innan félags með fræðslu, fyrirlestrum og/eða námskeiðum. stuðla að aukinni útbreiðslu og/eða stofnun félags eða deilda. stuðla að aukinni þekkingu og varðveislu á menningu og sögu félags. eru til þess fallin að auka menntun þjálfara og dómara. eru í samræmi við auglýst áhersluatriði sjóðsins hverju sinni. Fyrir úthlutanir 2022 er lögð áhersla á átaksverkefni til þess að snúa við brottfalli barna og ungmenna í skipulögðu íþróttastarfi vegna áhrifa heimsfaraldurs Covid-19. Átaksverkefni til aukinnar þátttöku á Unglingalandsmóti UMFÍ. Umsækjendur eru hvattir til þess að kynna sér nýjar vinnureglur og matskvarða sjóðsins. Umsókn þarf að hljóta að lágmarki 50 stig til þess að vera metin styrkhæf. Umsækjendur sem hljóta styrk eru beðnir um að skila inn skýrslu á ákveðnu lokaskýrsluformi og senda til þjónustumiðstöðvar UMFÍ. Fyrri umsóknarfrestur ársins er liðinn. Seinni umsóknarfrestur er 1. nóvember 2022.


Viðburðir

  • 15.07.2025 Héraðsmót fatlaðra í frjálsum íþróttum
  • 15.07.2025 Héraðsmót HSK í frjálsum íþróttum
  • 27.07.2025 Landsmót UMFÍ 50+
  • 31.07.2025 Unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöðum
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

15.05

Sund, héraðsmót 2025

29.04

Sund, aldursflokkamót 2025

11.04

Blak, héraðsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, héraðsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.07

Frjálsar, héraðsmót fatlaðra

15.07

Frjálsar, héraðsmót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is