Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Ferðasjóður íþróttafélaga

09.01.2023 - 09.01.2023

Minnt er á að umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga er opið fyrir umsóknir um styrki vegna keppniferða innanlands á fyrirfram skilgreind styrkhæf mót ársins 2022. Umsóknarfrestur er til miðnættis 9. janúar 2023. Íþrótta og ungmennafélög geta stofnað strax umsókn og skráð inn í hana ferðir jafn óðum og þær hafa verið farnar, til að létta sér skráningarvinnu umsókna í árslok. Á hverju ári er stofnuð ný umsókn í kerfinu og við það stofnast vefslóð sem viðkomandi fær senda í tölvupósti og gildir sem lykill inn í viðkomandi umsókn þar til hún hefur verið send í gegnum kerfið í lok umsóknartímabilsins eða þegar viðkomandi félag hefur skráð allar þær ferðir sem farnar eru á styrkhæf mót innanlands það árið. Upplýsingasíða um sjóðinn. Umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga. Þegar komið er inn á svæðið smellið þá á Sækja um ferðastyrk sem er ofarlega á síðunni. Þegar búið er að fylla út reitina í skemanu og ýta á Stofna, þá er hægt að fara að skrá ferðirnar. Vefslóð hefur þá líka verið send á skráð netfang tengiliðar og þarf stofnandi umsóknar að muna að gæta vel að vefslóðinni því hún er lykillinn inn á umsóknina út umsóknarferlið. Í hópíþróttagreinum eru einungis Íslandsmót styrkhæf en í einstaklingsíþróttagreinum eru einnig mótaraðir sem gefa stig til Íslandsmeistaratitils, bikarmót og meistaramót styrkhæf. Mótalisti hverrar íþróttar birtist um leið og umsókn hefur verið stofnuð og viðkomandi íþróttagrein valin. Ef eitthvað er óljóst þá endilega sendið póst á undirritaða. Endilega verið dugleg að láta félögin innan ykkar vébanda vita af ofangreindu og hvetjið þau til að sækja um í sjóðinn vegna þeirra ferða sem þar falla undir. Frétt um málið á heimasíðu ÍSÍ, sem hægt er að deila.


Viðburðir

  • 15.07.2025 Héraðsmót fatlaðra í frjálsum íþróttum
  • 15.07.2025 Héraðsmót HSK í frjálsum íþróttum
  • 27.07.2025 Landsmót UMFÍ 50+
  • 31.07.2025 Unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöðum
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

15.05

Sund, héraðsmót 2025

29.04

Sund, aldursflokkamót 2025

11.04

Blak, héraðsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, héraðsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.07

Frjálsar, héraðsmót fatlaðra

15.07

Frjálsar, héraðsmót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is