Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

 

15. mars 2017

Kjartan öðlingur ársins hjá HSK

Kjartan Lárusson, Umf. Laugdæla HSK var útnefndur öðlingur ársins hjá HSK árið 2016 og var útnefningin kunngjörð á héraðsþinginu sl. laugardag. Bikarinn fyrir öðling ársins er veittur einstaklingum sem hafa keppt og iðkað íþróttir og heilsurækt í áratugi og/eða hafa starfað að félagsmálum í hreyfingunni og eru enn að.

Kjartan hóf feril sinn í körfuknattleik 1970 og hefur keppt á um 20 héraðsmótum, landsmótum UMFÍ og á Íslandsmótum í körfuknattleik og varð m.a. Íslandsmeistari í 3. deild 1976. Kjartan keppti fyrst í blaki á fyrsta héraðsmótinu 1974 og er en að keppa í því. Hann hefur keppt á mörgum Íslandsmótum og varð m.a. Íslandsmeistari í blaki í efstu deild 1979 og 1980 og bikarmeistari 1980. Þá varð hann landsmótsmeistari í blaki á Selfossi 1978. Kjartan hefur auk þess orðið Íslandsmeistari í sveitaglímu, varð bikarmeistari í glímu 2001 og hefur unnið til verðlauna í Íslandsglímu og á Íslandsmeistaramóti og var skjaldarhafi Skarphéðins 1986 og 1987. Kjartan hefur einnig æft og keppt á héraðsmótum í frjálsum íþróttum, handknattleik, knattspyrnu, borðtennis, dráttavélaakstri og hrossadómum. Hann hefur keppt á um 85 héraðsmótum. Síðustu ár hefur hann keppt á  Landsmóti UMFÍ 50+ m.a. í frjálsum íþróttum, sauðfjárdómum, blaki og ringó, og unnið til verðlauna í öllum greinum.

Deila

Tilbaka

Viðburðir

  • 25.09.2023 Þjálfaramenntun ÍSÍ
  • 01.10.2023 Umsóknir í Verkefnasjóð HSK berist fyrir 1. o..
  • 02.10.2023 Umsóknir í Íþróttasjóð berist fyrir 2. októbe..
  • 04.10.2023 Styrkir fyrir sjálfboðaliða, starfsfólk og þj..
  • 16.10.2023 Hægt að sækja um í Æskulýðssjóð
  • 20.10.2023 Sambandsþing UMFÍ
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

19.08

Starfsíþróttir, héraðsmót

03.08

Blak, hraðmót kvenna 2023

25.06

Sund, héraðsmót 2023

19.05

Blak, héraðsmót drengja 2023

19.05

Blak, héraðsmót stúlkna 2023

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Héraðsleikar og aldursflokkamó..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is