Valmynd

  • Stjórn, nefndir og ráð
  • |
  • Aðildarfélög
  • |
  • Lög og reglugerðir
  • |
  • Fundargerðir
  • |
  • Verkefnasjóður
  • |
  • Um HSK
Héraðssambandið Skarphéðinn

Lýðheilsuþing 10. nóvember

10.11.2022 - 10.11.2022

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur boðað til heilbrigðisþings 10. nóvember næstkomandi. Þingið verður helgað lýðheilsu. Þingið verður á Hilton Reykjavik Nordica og verður öllum opið. Það mun standa frá klukkan 8:30 til 16:30 og er aðgangur ókeypis. HSK hvetur fulltrúa íþrótta- og ungmennafélagshreyfingarinnar til þátttöku á þinginu. Fram kemur í boðsbréfi heilbrigðisráðherra á vefsíðu Stjórnarráðsins, að þingið hafi verið haldið síðastliðin fjögur ár og sé það tileinkað mikilvægum málefnum sem varða heilbrigðiskerfið og skipulag heilbrigðisþjónustu. Þetta árið hafi ráðherra ákveðið að helga þingið lýðheilsu. Þar verði einstaklingurinn í forgrunni með áherslu á allt það sem hægt sé að gera til að efla, vernda og viðhalda góðri heilsu. Jafnframt verði fjallað um það hvernig stjórnvöld og stofnanir samfélagsins geti með ákvörðunum sínum og aðgerðum skapað almenningi sem bestar aðstæður til heilsueflingar á öllum æviskeiðum. Í boðsbréfi ráðherra er jafnframt rifjað upp að Alþingi samþykkti á síðasta ári lýðheilsustefnu til ársins 2030. Markmið stefnunnar er að lýðheilsustarf með áherslu á heilsueflingu og forvarnir verði hluti af allri heilbrigðisþjónustu. Stjórnvöld skuli stuðla að því að landsmenn verði meðvitaðir um ábyrgð á eigin heilsu, s.s. með fræðslu og vitundarvakningu um gildi forvarna og heilsueflingar, s.s. á sviði næringar, hreyfingar og geðræktar. Liður í því er að tryggða fólki aðgang að hagnýtum og gagnreyndum upplýsingum um það efni sem auðveldar hverjum og einum að stunda heilbrigðan lífsstíl, viðhalda heilsu sinni eða bæta hana. Nánari upplýsingar eru á heilbrigdisthing.is og þar fer einnig fram skráning þátttöku Ítarlegri upplýsingar á Facebooksíðu lýðheilsuþingsins Aðgangur er ókeypis.


Viðburðir

  • 15.07.2025 Héraðsmót fatlaðra í frjálsum íþróttum
  • 15.07.2025 Héraðsmót HSK í frjálsum íþróttum
  • 27.07.2025 Landsmót UMFÍ 50+
  • 31.07.2025 Unglingalandsmót UMFÍ á Egilsstöðum
  • Fleiri viðburðir
  • HSK met
  • Sögulegur fróðleikur
  • Ársskýrsla HSK


Úrslit héraðsmóta

15.05

Sund, héraðsmót 2025

29.04

Sund, aldursflokkamót 2025

11.04

Blak, héraðsmót stúlkna 2025

11.04

Blak, héraðsmót drengja 2025

13.01

Skák, sveitakeppni HSK

Fleiri úrslit

Nýjar myndir

Formannafundur HSK 2025

Héraðsmótið í sundi 2023

Unglingamót HSK í frjálsum inn..

Aldursflokkamót í frjálsum inn..

Fleiri myndir

Mótaskrá HSK

15.07

Frjálsar, héraðsmót fatlaðra

15.07

Frjálsar, héraðsmót

logo

Héraðssambandið Skarphéðinn

Selinu

Engjavegi 48

800 Selfossi

Sími 482 1189

hsk@hsk.is